Heilbrigt líf - 01.12.1950, Side 76
Sjúkraskýlið í Sandgerði.
Það var starfrækt yfir vetrarvertíðina eins og áður, eða frá 16.
janúar til 20. maí.
6 sjúklingar lágu í skýlinu í samtals 40 daga. Gerðar voru 798
hjúkrunaraðgerðir og farnar 238 sjúkravitjanir út um þorpið og í
nágrenni þess.
Eins og undanfarið höfðu Keflavíkurlæknarnir, Karl Magnússon
og Björn Sigurðsson, viðtalstíma í skýlinu einu sinni í viku, sína
vikuna hvor.
Ymsar endurbætur voru gerðar á sjúkraskýlinu. Sett voru í
það olíukyndingartæki, rafmagnseldavél og rafmagnsþvottapottur,
Hins vegar er nú baðofninn í gufubaðstofunni genginn sér til
húðar og ónothæfur, og hefur ekki tekizt að fylla í það skarð, en í
þess stað hafa verið gerðar allmiklar umbætur á steypuböðunum,
og voru afgreidd á starfstímanum tæplega 1000 böð.
Forstöðukona var Margrét Jóhannesdóttir, hjúkrunarkona Rauða
kross Islands, en eftirlit annaðist Karl Magnússon, héraðslæknir.
Sjómenn og útgerðarmenn í Sandgerði hafa nú, sem fyrr, styrkt
starfsemina með f járframlögum.
A s. 1. vori barst framkvæmdanefnd Rauða kross íslands mála-
leitun frá oddvita Miðneshrepps, um, að sjúkraskýlið yrði framvegis
starfrækt árið um kring á vegum væntanlegrar deildar fyrir Sand-
gerði og Miðneshrepp. Framkvæmdaráð taldi æskilegt að verða við
beiðni þessari, en úr fi-ekari framkvæmdum hefur þó ekki orðið enn.
Heilbrigt líf.
Vegna anna ritstjórans, Páls Sigurðssonar, hefur orðið allmikill
dráttur á útkomu tímaritsins, þannig að síðara, 3.—4. hefti 1950, er
ekki komið út enn, þegar þetta er skráð.
Öskudagurinn.
Að þessu sinni var öskudagurinn óvanalega snemma árs, eða þann
7. febrúar.
Sölunni úti á landi var hagað mjög á sama hátt og áður, og
höfðu verið send út merki til allra útsölumanna og deilda Rauða
kross Islands alllöngu fyrir öskudag. Varð árangur merkjasölunnar
yfirleitt nokkuð betri en í fyrra.
Forsætisráðherra, Steingrímur Steinþórsson, talaði í útvarp um
starfsemi Rauða kross félaga, auk þess sem séra Jón Auðuns, for-
maður Reykjavíkurdeildar, flutti stutt ávarp.
Blöðin veittu einnig sitt lið, eins og ávallt áður.
I Reykjavík var merkjasalan að þessu sinni á vegum Reykjavíkur-
deildar, og þó með náinni samvinnu við skrifstofu Rauða kross
170
Heilbrigt líf