Heilbrigt líf - 01.12.1950, Síða 77
íslands, sem að mestu sá um undirbúning' og framkvæmdir, en þeim
var hagað líkt og síðastliðið ár.
Sölubörnin voru álíka mörg og árið áður, eða um 1100 og sýndu
sama áhuga og fyrr. Söluhæstir voru tveir sömu drengimir og
árið áður, þeir Helgi J. Schweizer og Ingi Lárusson, sem hvor um
sig seldi fyrir rúmlega 380 krónur.
Sjúkraflutningar.
Enn er verið að baslast við gömlu sjúkravagnana, sem eru þó
mjög úr sér gengnii' og viðhaldsfrekir og því óeðlilega dýrir í
rekstri.
Alls voru farnar 2614 ferðir um bæinn, mest í október, 250 ferðir,
en fæst í febrúar, 185 ferðir.
Ut úr bænum, og þá aðallega í nágrenni hans, því að lengra er
ekki áhættulaust að senda hina öldnu bíla, voru farnar 83 ferðir.
Vegna slysfara voru farnar 74 ferðir ókeypis.
Samtals fóru vagnarnir þannig 2771 ferð, eða sem svarar 53
ferðum á viku.
Námskeið.
Eins og áður ferðaðist hjúkrunarkona Rauða kross Islands, frk.
Margrét Jóhannesdóttir, um landið og hélt námskeið, að þessu sinni
á eftirtöldum stöðum:
I húsmæðraskólanum á Löngumýri og bændaskólanum að Hólum
í Hjaltadal. A Löngumýri tóku 38 stúlkur þátt í námskeiðinu og
luku allar prófi að einni undanskilinni. Að Hólum voru þátttakendur
26 piltar og 2 stúlkur. 26 þeirra luku prófi í hjálp í viðdögum. Þessi
tvö námskeið voru haldin í nóvember.
A vegum Sambands sunnlenzkra kvenna voru haldin fjögur nám-
skeið. Hið fyrsta þeirra var í október 1950 í Austur-Eyjafjalla-
hreppi. Á því voru 12 stúlkur og 3 piltar.
I desember voru svo haldin 3 námskeið, tvö á Selfossi og ejtt í
Gnúpverjahreppi. Þátttakendur voru alls um 60.
Á námskeiðunum var að jafnaði kennt 4—5 stundir á dag.
Fundir og mót.
í október 1950 var haldinn fundur í stjórn Alþjóða rauða kross-
ins (Board of Governors) í Monte Carlo. Þar mætti formaður Rauða
kross fslands, sem er fulltrúi hans í stjórninni.
Formaður Alþjóða rauða krossins er nú Svíinn Emil Sandström.
Formenn Rauða kross félaganna á Norðurlöndum héldu sameigin-
legan fund í Stokkhólmi í september s. 1. Því miður gat formaður
Heilbrigt líf
171