Heilbrigt líf - 01.12.1950, Page 78
Rauða kross íslands ekki mætt á fundi þessum. Fundir þessir eru
annars haidnir árlega, og er ráðgert, að fundurinn 1951 verði hald-
inn í Kaupmannahöfn og síðan ef til vill í Reykjavík árið 1952.
I desember var haldin alþjóða ráðstefna í Washington um barna-
hjálp.
Fundarboðandi var Truman forseti. Formaður Rauða kross ís-
lands var boðaður á fund þennan, en gat ekki komið því við að
mæta þar.
I apríl 1951 boðaði Alþjóða rauði krossinn til fundar í Hannover,
til þess að ræða flóttamanna-vandamálin í Vestur-Þýzkalandi og
Austurríki.
Þar mætti Árni Siemsen, ræðismaður íslands í Liibeck, fyrir hönd
Rauða kross íslands.
Loks bauð norski Rauði krossinn eða barnahjálp hans (Barne-
hjælpcentralen) til móts í Modum Bad í maí 1951, en ekki er útlit
fyrir, að hægt sé að sinna því boði.
Ráðstafanir vegna styrjaldarhættu.
I ágúst 1950 barst Rauða krossi íslands bréf frá ráðuneyti ís-
lands ásamt afriti af bréfi frá iandlækni til ráðuneytisins um ráð-
stafanir til verndar almenningi, ef til ófriðar kæmi. Er þess beiðst
í bréfinu, að Rauði kross Islands framkvæmi athugun þá, sem land-
læknir stingur upp á í bréfi sínu, á kostnað ríkissjóðs. En land-
læknir ber fram þá tillögu, að ráðuneytið fari þess á leit við Rauða
kross Islands, að hann taki mál þetta til rækilegrar meðferðar og
athugunar, og þá m. a. með því að kynna sér sem bezt aðgerðir
nágrannaþjóðanna, en síðan geri hann tillögur um þær ráðstafanir,
sem hér þættu geta komið til greina.
Formaður og varaformaður áttu eftir móttöku bréfsins viðtal
við forsætisráðherra og bentu á, að þegar í stað væri nauðsynlegt
að birgja sjúkrahús og lyfjabúðir að lyfjum og umbúðum og fleiru
þess háttar, og jafnframt töldu þeir nauðsynlegt, að nú þegar yrði
leyfður innflutningur sjúkrabíla.
Meira gerðist svo ekki í máli þessu af hendi ríkisstjórnar, en
hins vegar barst Rauða krossi íslands í desember s. 1. bréf frá borg-
arstjóra Reykjavíkur, þar sem Rauði kross Islands er beðinn að
tilnefna einn mann, sem ásamt lögreglustjóra, slökkviliðsstjóra og
skrifstofustjóra bæjarverkfræðings geri tillögur um ráðstafanir til
loftvarna og annars öryggis, ef til hernaðarátaka kynni að koma
hér á landi. Rauði kross íslands varð þegar við þessari málaleitan
og tilnefndi Bjarna Jónsson, lækni, í nefndina.
172
Heilbrigt líf