Heilbrigt líf - 01.12.1950, Síða 83
V ngliðadeildir.
Starf ung’linðadeildanna hefur verið í hálfgerðum molum hin síð-
ustu árin. Þannig mun nú svo komið, að engin ungliðadeild er
starfandi í skólunum í Reykjavík. Til þessa liggja ýmsar orsakir,
og verða þær ekki raktar hér að sinni.
Uti á landi starfa hins vegar deildir á nokkrum stöðum enn, sem
betur fer. Þannig starfar t. d. alltaf hin ágæta deild „Árvekni“,
undir stjórn Jóns Þ. Björnssonar, skólastjóra á Sauðárkróki, og á
Eskifirði starfar önnur dugnaðardeild, undir forsjá Skúla Þor-
steinssonar, skólastjóra, og hefur starfað síðan árið 1941. Um þá
deild, sem raunverulega er í þrem flokkum, segir í bréfi frá Skúla:
tt
Skipulegir fundir eru haldnir tvisvar í mánuði. Á fundunum
er starfsemi RK rædd, börnin syngja, segja sögur og lesa upp.
Sérstök rækt er lögð við gott mál og skýran framburð. Stundum
gera börnin lista yfir þær málvillur, sem heyrzt hafa hjá með-
limum deildarinnar og benda á þau orð, sem nota ber. Einnig
er jafnan minnt á sjálfsögðustu, daglegar heilbrigðisreglur og
fylgzt með því eftir föngum, hvernig þær eru haldnar af ein-
stökum meðlimum.
011 árin, síðan deildirnar voru stofnaðar, hafa þær sameigin-
lega sýnt eitt leikrit eða sitt leikritið hver.
Á hverjum jólum senda deildirnar ofurlitla gjöf til allra sjúk-
linga úr kauptúninu. Einnig fær aldursforseti staðarins ofur-
litla jólagjöf.
Deildirnar hafa einnig á stefnuskrá sinni að skreyta skóla-
stofurnar. Hafa þær þegar gefið í hverja stofu mynd af Jóni
Sigurðssyni og fána á stöng.
Á fundi deildanna eru að sjálfsögðu ræddar umgengnis-
venjur og framkoma við menn og málleysingja.
Venjulega hlakka börnin til fundanna og þó sérstaklega þau
yngri.
Eg tel, að æskilegt væri, að ungliðadeildir störfuðu skipulega
í öllum barnaskólum landsins og hefðu samband sín á milli. Gæti
margt gott leitt af slíkri starfsemi. Árangurinn yrði kannske
ekki mikill þegar í stað, fremur en af svo mörgu öðru í skóla-
starfinu. Stundum kemur bezta uppskeran, þegar enginn man
lengur, hvaðan frækornin féllu.
Reykjavík, 10. maí 1951.
Gunnar Andrew.
Heilbrigt líf — 6
177