Úrval - 01.06.1949, Page 3
Nr. 3
TIMARITSGREINA I SAMÞJOPPUÐU FORMl
8. ÁRGANGUR •:> REYKJAVlK * MAl—JÚNl 1949
Atlantshaf sbandalagið:
Amerískt viðhorf.
Forustugrein úr „Life“.
A'ÉK gerum ráð fyrir, að les-
endum vorum hafi verið sagt
nógu oft, að Atlantshafssátt-
málinn sé „heimssögulegur stór-
viðburður", svo að notuð séu
orð Bevins. Nú, þegar undir-
skrift hans fer fram í Wash-
ington, munum vér láta nægja
nokkrar athugasemdir um,
hvaða áhrif hann hefur á og
hvert gildi hann hefur fyrir
Ameríkumenn, Vestur-Evrópu-
búa — og Rússa.
Það ætti ekki að leika á tveim
tungum um áhrifin. Hann skuld-
bindur Bandaríkin, Kanada og
tíu þjóðir Evrópu — Bretland,
Frakkland, Belgíu, Holland,
Luxemburg, Italíu, Portúgal,
Noreg, Danmörku og Island —-
tTrval birtir hér fjórar greinar um
Atlantshafssáttmálann. Sú fyrsta er
amerísk, önnur brezk, og hinar tvær
danskar. Mál þetta hefur, sem kunn-
ugt er, orðið ákaft deiluefni hér á
landi, sem og í öðrum löndum, er
aðild eiga að sáttmálanum, og hafa
deiluaðilar lítt sézt fyrir í þeirri bar-
áttu. Með þessum greinum vill Urval
gefa lesendum sínum lítið, en að
sjálfsögðu ófullkomið sýnishorn af
því, hvernig skrifað hefur verið um
þessi mál í erlend tímarit.
til að fara í stríð til sameigin-
legrar varnar, ef einhver þeirra
verður fyrir árás. Orðalagið er
þannig, að þess er vandlega
gætt, að í því felist skylda, án
þess þó að um algera skuldbind-
ingu sé að ræða, en sá er óum-