Úrval - 01.06.1949, Page 20
Reynslan af penicillini liefur farið fram úr djörfustu
vonum þeirra, sem bezt þekktu það.
Penicillin er enn undralyfið miklal
Grein úr „Nation’s Business",
eftir J. D. Ratcliff.
A TIÐ skulum líta inn í eina af
* stærstu lyfjaverksmiðjum
Bandaríkjanna. Nokkrir menn
fara inn í lítinn klefa úr ryðfríu
stáli; þeir eru naktir. Þaðan
fara þeir inn í annan klefa, þar
sem þeir fá sótthreinsunar-
steypibað. Því næst klæðast þeir
gerilsneyddum sloppum, húfum,
grímum og bómullarskóm.
Nokkrir kvenmenn ganga í gegn
um sama hreinsunareld annars
staðar.
Hurðina inn í næsta herbergi,
vinnuherbergið, er erfitt að
opna. I því er loftþrýstingurinn
svolitlu meiri en fyrir utan —
loft streymir því aðeins út það-
an, en hvergi inn, nema gegn-
um lofthreinsunartækið, sem
hreinsar allt ryk úr loftinu, með
því að láta það fara í gegnum
glerull, og útfjólubláir geislar
eru látnir leika um það til að
drepa í því allar bakteríur.
Fólkið er nú reiðubúið að taka
til starfa. Það er hlutverk þess
að tilreiða þann sveppagróður í
glösum, sem penicillin er fram-
leitt úr. Þessar yfirgripsmiklu
varúðarráðstafanir til þess að
tryggja algerlega ómengaðan
sveppagróður, eru ekki ástæðu-
lausar. Eitt tilraunaglas með
sveþpinum Penicillum chryso-
genum á að verða „sæði“ í ker,
sem inniheldur 80 þúsund lítra
af „súpu“ — næringarvökva fyr-
ir sveppina. Sveppirnir nærast
á súpunni og gefa frá sér peni-
cillin á sama hátt og kýrin étur
gras og gefur af sér mjólk. Ef
ein aðvífandi baktería mengast
súpunni, verður að fleygja
henni.
Eftir rétta sjö ára notkun á
penicillin að baki sér glæsilegri
sögu en nokkurt annað lyf, sem
fundið hefur verið upp. I Banda-
ríkjunum einum munu á þessu
ári 50 þúsund lungnabólgusjúk-
lingar eiga því líf sitt að launa.
Ótaldar þúsundir, sem þjást af
öðrum næmum sjúkdómum,