Úrval - 01.06.1949, Síða 42
I>að sem allir karlmenn
þurfa að vita um —
PROSTATA
Grein úr „Salute“.
'l/'IÐ höfum öll heyrt talað um
hinn erfiða tíðabrigðaaldur
kvenna, en færri munu hafa
gert sér grein fyrir, að karl-
menn eiga sinn frjóbrigðaaldur
líka, sem mörgum reynist erf-
iður, þó þess verði ekki almennt
eins vart ög hjá konum.
Erfiðleikar karlmannanna
stafa frá kirtli, sem er á stærð
við valhnotu. Hann er í nánd
við kynfærin og nátengdur
þeim og er kallaður prostata
eða blöðruhálskirtill, af því að
hann er við munna þvagblöðr-
unnar. Margir hafa sjálfsagt
heyrt um hann, en það er sorg-
leg staðreynd, að sárafáir vita
hvernig og hversvegna erfið-
leikarnir í sambandi við starf-
semi kirtilsins verða.
Sárafáir karlmenn komast
hjá prostataóþægindum í einni
eða annarri mynd, segir dr.
Edwin F. Bowers, einn af
helztu sérfræðingum á þessu
sviði. En það er og hefur verið
alltof mikil ónauðsynleg leynd
yfir þeim sjúkdómum, sem
standa í sambandi við þenna
kirtil, og sem einu nafni eru
nefndir prostata. Það getur
verið ígerð, sem orsakast af
kýlum, eða skemmd af völdum
höggs, falls eða þrýstings vegna
hægðatregðu. Einnig getur
krabbamein myndast í blöðru-
hálskirtlinum. En hvers eðlis
sem sjúkdómurinn er veldur
hann alltaf miklum óþægindum
og gerir menn ellilega um skör
fram
Dr. Charles B. Huggins, pró-
fessor við háskólann í Chicago,
sem fékk styrk vegna rann-
sókna sinna á prostatakrabba-
meini, telur að 45% allra karl-
manna yfir fertugt séu með
góðkynjuð prostataæxli, að 9
til 17% allra karlmanna yfir
fimmtugt hafi krabbamein í
blöðruhálskirtlinum, og að 5%
deyi af slíku krabbameini.
Þetta eru uggvænlegar tölur.
Fyrir fimmtíu árum vissu
menn að heita mátti ekkert um