Úrval - 01.06.1949, Side 61
BARNAFRÆÐSLA UM KYNLÍFIÐ
59
fræðilegum skýringum, heldur
með okkar eigin orðum, sem
byggð eru á hinum fræðilegu
skýringum. Þegar við finnum,
að við kunnum glögg skil á þeim
atriðum, sem börnin spyrja um,
erum við öruggari gagnvart
þeim og minni hætta á að við
verðum vandræðaleg í framan
eða 1 röddinni.
Fræðslu skólabarna í kyn-
ferðismálum er hægur vandi að
fella inn í almenna fræðslu í
líffræði og lífeðlisfræði, þannig
að hún verði eðlileg en ekki
huiin einhverri æsandi leynd.
Þegar börnin í efstu bekkjum
barnaskólanna eru frædd um
eðli og byggingu mannslík-
amans, á að sýna þeim myndir
af innri og ytri gerð hans, og þær
myndir eiga að vera í alla staði
eðlilegar, á þeim eiga ekki að
vera neinar hvítar eyður, engin
ókunn svæði, heldur eiga kyn-
færin að sjást þar eins og öll
önnur líffæri, svo börnin skilji,
að þau séu náttúrlegur og sjálf-
sagður hluti af líkamanum og
jafnmikilvæg og aðrir hlutar
hans, og að allir myndi þeir
eina órofa heild.
Það eru sem sé ekki aðeins
kynfærin, sem börnin spyrja um
og hafa áhuga á. Margir for-
eldrar munu kannast við^ að
börn spyrja af hverju þau finni
til, hvernig þau fari að hugsa,
af hverju þau vaxi, þegar þau
borði o. s. frv. Þenna áhuga
barnanna eigum við að glæða
með því að gefa þeim greið
svör, og bægja með því frá
þeim margskonar heilabrotum,
pukri og ótta og kenna þeim að
líta á öll líffæri sín sem nátt-
úrleg og eðlileg.
Og á sama hátt og það er
hlutverk foreldranna að gefa
fyrstu svörin við slíkum spurn-
ingum, á það að vera hlutverk
skólanna að láta í té fyllri
fræðslu. Það ætti ekki að vera
erfiðara en fræðslan um frjóvg-
un jurtanna og meltingarfæri
jórturdýranna.
Sjálfsvörn ?
Nýjasta afrek tækninnar er vafasamur ávinningur fyrir
kvenþjóSina: maðurinn getur nú flogið hraðar en hljóðið.
— Saturday Evening Post.