Úrval - 01.06.1949, Blaðsíða 68
66
ÚRVAL
geislun frá öllu lifandi efni. í
málaflutningi sínum er Gurevitch
miklu sennilegri en Lysenko,
en ég er viss um, að enginn
menntaður líffræðingur lætur
sannfærast af skrifum hans.
Hvernig stendur þá á því, að
Gurevitch er áhrifalaus, en
Lysenko tekst í ágúst síðast-
liðnum að ryðja andstæðingum
sínum úr vegi og fá skoðanir
sxnar teknar gildar sem stefnu
hins opinbera í líffræði?
Við verðum að fara eina öid
aftur í tímann til að finna skýr-
ingu á því. Á dögum Krím-
styrjaldarinnar fæddist í Rúss-
landi maður að nafni Michurin.
Hann varð kunnur jarðræktar-
fræðingur eins og samtíðar-
maður hans, Luther Burbank í
Ameríku. Hann var einstaklega
heppinn í jarðræktarstarfsemi
sinni, hafði „græna fingur“
eins og sagt var um Burbank;
og eins og Burbank taldi hann,
að frægð sín gæfi sér heimild
til að koma með allskonar
barnaleg ummæli varðandi líf-
fræði. Dagdraumar Michurins
voru trú á mátt mannsins til
að breyta eðli plantna með á-
græðslu, kynbótum og öðru því-
líku. Michurin hélt, að ef menn-
irnir hefðu næga kunnáttu, gætu
þeir alltaf breytt eðli með eldi.
Þessi ungæðislega bjartsýni
féll auðvitað í mjög góðan jai’ð-
veg hjá bolsévíkum. Ef þeir
hefðu ekki statt og stöðugt
trúað því, að þeir gætu breytt
nytjajurtum sínum, dýrum og
jafnvel sjálfum sér, þá myndu
þeir ekki vera komnir jafnlangt
og raun ber vitni — og við
skulum viðurkenna, að þeir
hafa lagt að baki sér heillar
aldar þróun á tuttugu og fimm
árum. I öðrum löndum eru líf-
fræðingar enn að rannsaka
hlutfallslegt áhrifavald erfða
og umhverfis ■— eðlis og eldis.
En í Sovétríkjunum hefur mál-
ið verið útkljáð í eitt skipti
fyrir öll eldinu (umhverfinu) í
hag. Það er því ekkert undr-
unarefni þó að bolsévíkar tækju
Michurin gamla tveim höndum
og teldu fordæmi hans öðrum
jarðræktarfræðingum til fyrir-
myndar. Þetta var maður, sem
mundi geta fært út kornekrur
landsins norður fyrir heim-
skautsbaug og austur á eyði-
merkur Mið-Asíu. Þegar Mic-
hurin dó árið 1935 var hann
hetja hins nýja Rússlands og
öll skólabörn landsins þekktu
nafn hans. Það er því ekkert