Úrval - 01.06.1949, Blaðsíða 88
Merkilegar næringarefnatilraunir stancía
nú yfir við háskólann í Illinois í
Bamlaríkjunum.
Amínósýrur sem sjúkrafœða.
Grein úr „Science Illustrated".
T> ANNSÓKNIR, sem leiða
munu í Ijós hvaða amínó-
sýrur og hve mikið af hverri
mannslíkaminn þarfnast, hafa
staðið yfir undanfarin fimm ár
við háskólann í Illinois í
Bandaríkjunum undir stjórn
W. C. Rose, prófessors í líf-
efnafræði. „Tilraunadýrin“ eru
sjálfboðaliðar úr hópi stúdenta.
I tvo mánuði eru þeir eingöngu
aldir á sérstökum tvíbökum,
smjöri, vitamíntöflum og sætu
sítrónuvatni með amínósýrum
í. Þieir drekka aðeins hreint,
eimað vatn. Fæðið er álitið full-
nægjandi. Þeir fá gnægð kol-
vetna í tvíbökunum og sykr-
inum, fitu úr smjörinu og víta-
mín og málmsölt í töflum. Aftur
á móti vantar eggjahvítuefni.
1 stað þess koma amínósýr-
urnar.
T'ilgangur Rose, prófessors,
með þessum tilraunum er sá,
að komast að raun um, hvaða
amínósýrur og hve mikið af
hverri mannslíkaminn þarfnast
í stað eggjahvítefnis í fæðunni.
Tilraunir hans á hvítum rott-
um undanfarin 20 ár hafi leitt
margt athyglisvert í Ijós. Nú
er röðin komin að mönnunum.
Til þess að skilja tilraunirnar,
er nauðsynlegt að vita, hvaða
gildi eggjahvítuefnin hafa í
fæðunni.
Allar lífverur eru gerðar af
eggjahvítuefnum. Þau eru
meginefnið í öllum frumum
iíkamans. Litlu máli virðist
skipta, hvort eggjahvítuefnin
koma úr jurta- eða dýraríkinu,
en ef maðurinn fær ekki eggja-
hvítuefni í fæðunni, hefur hann
engin köfnunarefnissambönd til
að endurnýja og skapa nýjar
líkamsfrumur.
En hvernig geta amínósýrur
komið í stað eggjahvítuefna ?
Eggjahvítuefnin eru samsett
af amínósýrum. Þegar þær eru í
fæðunni, getur líkaminn byggt
úr þeim eggjahvítuefni, eins og