Úrval - 01.06.1949, Blaðsíða 97
Norsk kennslukona, sem boðin var á kvennaþing
í Frankfurt síðastliðið sumar, segir
okkur ýmislegt —•
Frá Þýzkalandi.
Grein úr „Verden IDAG“,
eftir Helgu Stene, lektor.
TTRUNDAR BORGIR, hús-
A næðisskortur, matarskort-
ur, fataskortur, eldsneytisskort-
ur, flóttafólk, fjölgun glæpa-
manna og vændiskvenna, svart-
ur markaður, andleg og sið-
ferðileg niðurlæging, nazistisk
leynistarfsemi — allt eru þetta
drættir í svipmynd Þýzkalands
í dag. En það er sem betur fer
ekki öll myndin. Það eru enn
til Þjóðverjar, sem lifa tiltölu-
lega eðlilegu lífi — á sínum
gömlu heimilum innan um göm-
ul húsgögn og bækur, þó að þeir
hafi neyðzt til að taka ókunn-
uga inn á heimilin. Það er til
fólk, sem hefur kjark til að hef ja
hina andlegu og efnalegu end-
urreisn þjóðar sinnar.
Við dvöl mína í Þýzkalandi
1933—35, sem lektor við háskól-
ann í Berlín, hafði ég séð flóð-
bylgju nazismans skelia yfir
þýzku þjóðina.
Ég fylltist því mikilli eftir-
væntingu, þegar mér barst boð
um að koma til Þýzkalands vor-
ið 1948.
Bærinn Frankfurt hélt í ár
hátíðlegt hundrað ára afmæli
hins svonefnda Frankfurtþings.
Hinn 19. maí 1848 mættust þar
fulltrúar frá öllum héruðum
Þýzkalands til þess að reyna að
gefa landinu lýðr'æðislega stjórn-
arskrá. En afturhaldið bar sig-
ur úr býtum, sumir af þessum
mönnum féllu í götubardögum,
aðrir fóru til Ameríku. Þrátt
fyrir hin erfiðustu skilyrði, töldu
yfirvöld borgarinnar nauðsyn-
legt einmitt nú, að þetta hundr-
að ára afmæli yrði haldið há-
tíðlegt til að sýna þjóðinni og
öllum heiminum, að hugsjón lýð-
ræðisins eigi sér langa sögu 1
Þýzkalandi. Og svo var haldin
viku hátíð með gestum víðsveg-
ar að úr Þýzkalandi og frá út-
löndum.
Aðalræðumaðurinn við sjálfa