Úrval - 01.04.1952, Blaðsíða 82

Úrval - 01.04.1952, Blaðsíða 82
80 ÚRVAL finningar mínar á pappírinn, fór allt í handaskolum fyrir mér. Það var alveg sama, hve lengi ég sat við skriftir, ég komst ekkert áfram, og og seinna brenndi ég allt sem mér hafði tekizt að skrifa. Ég gat ekki skilið handritið við mig, því að þá hefði einhver á heim- ilinu getað fundið það og lesið. Ég þorði jafnvel ekki að rifa það í tætl- ur og kasta því í öskutunnuna, því að ef til vill hefði einhver, kannski öskukarlinn, farið að setja það sam- an af rælni. Það fjallar nefnilega um líf okkar Enid, og um líf alls fólksins í Oakdale. Allt, sem ég skrifaði, var hlaðið sprengiefni, því að ég skrifaði það í raun og veru fyrir sjálfan mig og mér til hugarhægðar. Eg varð að skrifa allt. Ég vildi festa það allt á pappírinn, því að ef mér tækist það, var ég þess fullviss, að það myndi hætta að angra mig, hætta að eyðileggja hamingju mína og hamingju Enid og barnanna. Ég hafði engan áhuga á starfi minu framar. Ég gat ekki haldið á- fram að byggja það upp og auka tekjur mínar með því að færa út tryggingarstarfsemi mína. Ég var ruglaður og ég var þreyttur, og það er ekki eðlilegt að maður á fertugs- aldri sé orðin þreyttur. Það var ekkert líkamlegt. Ég var gallhraustur. Ég var þreyttur í höfð- inu og þjakaður á sálinni. Ég held að það hafi að sumu leyti stafað af því, að ég fékk aldrei að vera einn, þvi að í þeim heimi sem ég lifði í virtist enginn vilja vera einn. Það virtust meira að segja allir óttast það. Það vildu allir snæða saman, eða leika golf saman, eða fara í klúbb- inn. Og í úthverfunum, þar sem öll íbúðarhúsin stóðu þétt saman, þar sem tvö hundruð feta breið lóð var öll landareignin, þar var aldrei hægt að vera eina einustu kvöldstund einn. Annaðhvort fórum við í eitthvert boð eða samsæti eða einhver kom til okkar, leit inn ,,af því að hann hafði ekki annað við kvöldið að gera.“ Og jafnvel þegar ég var heima, þá voru þau þar alltaf, Enid og börnin, Ronnie og Esther. Þau voru öll þeirrar skoðunar, að ekki væri hægt að skemmta sér ríema margt fólk væri samankomið og út- varpið x gangi. Stundum liðu svo vikur, að ég var ekki einn eitt augnablik, því að jafn- vel eftir að ég var háttaður, lá Enid við hliðina á mér x hinu rúminu, og leiddi mér fyrir sjónir þá staðreynd, jafnvel þó að hún mælti ekki orð af vörum, að við værum hamingjusöm og vel efnum búin hjón, sem gætum verið öðrum til fyrirmyndar. Hún var staðráðin í því, að hjóna- band okkar skyldi vera fyrirmyndar hjónaband. Hún var ákveðin í því, jafnvel meðan hún svaf. Það mátti segja, að hún væri stöðugt að leika ákveðið hlutverk — hlutverk ástúð- legrar eiginkonu og móður, sem var gift manni, er dáði hana og gat ekki lifað án hennar. Hún hafði talið sér trú um, að ég væri miklu hamingju- samari vegna þess að hún væri hjá mér. En þegar ég komst að raun um, að ég gat ekki notið friðar og einveru fyrr en eftir miðnætti og fór að læsa mig inni í leikherberginu til þess að vinna að þessu verki, sem ég varð að ljúka, þá varð hún auövitað óróleg. Stundum held ég að henni hafi gramizt þessi uppreist mín, sem eyði- lagði hina mikilfenglegu hugmynd hennar og draumsjón í enn ríkara mæli heldur en þó að ég hefði verið henni ótrúr og hún hefði komizt að því. Með því að flýja hana og leita einverunnar hafði ég svikið hana og það hlutverk sem hún hafði ætlað sér og mér. Stundum, þegar mér fór að ganga heldur betur við það sem ég var að gera, heyrði ég fótatak hennar yfir höfði mér og allt var eyðilagt. 1 fyrstu hélt ég að þetta væri tilviljun, en nú er ég kominn á þá skoðun, að hún hafi haldið að hún gæti þvingað mig til uppgjafar með
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.