Úrval - 01.04.1952, Blaðsíða 91

Úrval - 01.04.1952, Blaðsíða 91
MR. SMITH 89 Þegar liðþjálfinn var farinn tók ég upp bréfið frá Enid, sem varpað hafði verið niður með öðrum pósti þennan dag. Við fáum póst á þriggja vikna fresti, þegar flugvél flýgur yfir eyjarnar og kastar póstinum niður til gleymdra og ein- angraðra vesalinga eins og okkar. Bréfið hófst á orðunum „E'iskan mín,“ og það var nóg til að koma mér í illt skap. Elskan min (skrifaði hún), ég hef ekki frétt af þér i þrjár vikur og vona að ekkert sé að. Eg var dá- lítið undrandi þegar ég heyrði, að þú værir ekkert óánægður með lífið. Það er ekki mikið að frétta. Börn- in eru frisk og sakna þín. Ronnie gengur ekki vel í skólanum, svo að ég lét rannsaka hann nákvæm- lega — augu, eyru, nef og allt — en læknarnir fundu ekkert athuga- vert við hann. Hann segir bara, að hann langi ekki til að ganga í skóla, svo að ég býst við að ég verði að hamra á honum þangað til hann sér að sér. Eg hef verið að lesa bækur um þetta efni, og i einni þeirra stendur, að börn, sem séu ó- fús að ganga í skóla, hafi orðið fyr- ir angri og vonbrigðum á heimilinu, en ég veit að það getur ekki verið ástæðan. Hér er allt í svo góðu lagi. Það er allt í lagi með Esther. Hún er gott barn og hefur aldrei verið óþæg. Hún er altlaf svo skilnings- góö, og þegar mér leiðist af því að þú ert í burtu, kemur hún til min, leggur handlegginn um háls mér og segir: „Elsku mamma, láttu ekki liggja illa á þér. Bráðum kemur pabbi heim og þegar hann er kom- inn, þá elskar hann þig meira en nokkru sinni." Er þetta ekki dá- samlegt ? Hún er gerólik Ronnie, sem stundum er kuldalegur og raunar fjandsamlegur í minn garð. Móðir þin kom hingað í síðustu viku og gisti eina nótt. Hún er á ferðalagi fyrir eitt af félögunum sínum til þess að selja striðsskulda- bréf. Hún var þreytuleg og ellileg, og ég talaði lengi við hana og leiddi henni fyrir sjónir, að hún væri ekki lengur ung og gæti ekki boðið sér það, sem hún þoldi áður, en það var eins og að tala við stein. Þú verður að reyna að skrifa henni oftar, elskan min. Mér fannst hún vera bæði særð og móðguð yfir því, að ég fæ fleiri bréf en hún. Þú veizt hvernig hún er. Ég myndi skrifa þér oftar, en það er eins og það sé til einskis, því að maður veit aldrei hvort þú færð bréfin. Eg er að leggja af stað til New York, þar sem hin árlega bekkjarhátíð verður haldin. Ég vildi óska að þú hefðir getað verið með. Klúbburinn er orðinn hálf skringi- legur, því að það er svo lítið um karlmenn. Þeim er alltaf að fækka — eftir eru aðeins drengir og öldungar. Manni finnst það vera svo tilgangslaust, að þú skulir hanga þarna úti í miðju Kyrrahafi, þegar þú gætir lifað hamingjusömu lífi hjá konu þinni og börnum. Farðu nú vel með þig, og þegar þú kemur heim, skulum við vinna upp alla þessa glötuðu mánuði og ár. Þú getur ekki ímyndað þér, hve mér finnst ég vera einmana, þegar ég horfi á autt rúmið þitt. Og skrif- aðu mér . . . þú veizt ekki, hvað bréfin þín hafa mikla þýðingu fyr- Jæja, svona var þá bréfið. Fallegt bréf. Nákvæmlega þesskonar bréf, sem elskandi kona mundi skrifa elskandi eiginmanni, bréf konu, sem raunverulega léti sér annt um tengda- móður sína og léti likamlega vel- ferð barna sinna sitja fyrir öllu . . . bréf konu, sem maður gæti yfirgef- ið í fullu trausti þess, að hún reyndist trú og sæi fyrir öllu. Já, fallegt bréf . . . óaðfinnanlegt . . . fyrirmynd . . . En . . . hvað? . . . Það var þesskonar bréf, sem leikari les á leiksviði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.