Úrval - 01.06.1956, Side 35

Úrval - 01.06.1956, Side 35
KYNLlF Á LEIKSVIÐI 33 hefur haft holdleg mök við, er í raun og veru fordæða, þó að glæpur hennar sé ekki sá að hafa dansað við djöfla í tungl- skini. Glæpur hennar er sá, að hafa látið hetju leikritsins taka sig frillutaki úti í skógi. Þessu viðfangsefni — hinu djöfuilega valdi kynlífsins og afleiðingum ótrúmennsku í hjónabandi — rugluðu áhorfendur saman við atburði í stjórnmálum samtím- ans, svo sem rannsóknir þing- nefnda á starfsemi kommúnista. Ef Deiglan hefði verið sýnd á tímum pólitísks umburðarljmd- is, mynduð við hafa séð annað, og ég hygg, betra leikrit. Sú innri nauð, sem knýr Biff í Sölumaður deyr til að eyði- leggja framtíð sína, leggja í rúst líf föður síns og gera draum hans að engu, á rætur sínar að rekja til þess að hann stendur föður sinn að því sauruga athæfi að eiga mök við léttúðardrós í hótelherbergi. Allt líf Willy Lo- mans hrynur í rúst, ekki af því að samfélagið sér ekki öldruð- um sölumanni fyrir efnahags- öryggi, heldur af því að hann hefur stigið eitt vixlspor, drýgt hór. Getið þið ímyndað ykkur að persóna í leikriti eftir Schnit- zler, Pirandello, Giraudoux eða Anouilh komist svo algerlega úr jafnvægi við það að sjá föður sinn gera sig sekan um smáveg- is hórdóm? Sonurinn mundi gera ráð fyrir því, að faðirinn hefði hjákonu, og faðirinn mundi ekki amast við því að sonurinn legði lag sitt við vændiskonur eða stofnaði til sambands við fullorðna konu, og allir myndu njóta lífsins, einkum kvenfólkið. En í Sölumaður deyr er kynlífið saurugt og viðbjóðslegt athæfi, sem öllum veldur óhamingju og ætti að rannsakast af atorku- samri þingnefnd. Enda þótt La guerre de Troie n’aura yas lieu fjalli um Tróju- stríðið, og enda þótt Helena fagra, drottning Menelásar kon- ungs í Spörtu, sem vissulega er orsök stríðsins, sé aðalpersóna leiksins, bólar hvergi á þeim ótta við kynlífið, sem einkennir amerísk leikrit. Helena er ung, Ijóshærð kona, gædd seiðmögn- uðum kynþokka, og það er eitt af hinum kaldhæðnu atriðum sögunnar, að Helena og París, kóngssonur frá Tróju, sem nemur Helenu á brott, fella ekki einu sinni ástarhugi sam- an. Það er ekki einu sinni ást- aróður í Rómeó-og-Júlíu stíl. Hinni hörmulegu styrjöld er hleypt af stokkunum fyrir til- verknað tveggja munuðfullra einstaklinga, sem finna á- hy&gjulausa nautn í því að rekkja saman. Helena nýtur þess raunar að samrekkja hverj- um þeim karlmanni, sem henni lýst vel á, og Giraudoux hneykslast ekki og fyllist ekki viðbjóði á því, sem ekki getur talizt fágætt fyrirbrigði í frönsku þjóðlífi. Ef það er nokkuð, sem Giraudoux hefur andstyggð og viðbjóð á, þá er
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.