Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Side 6
íslenskar skáldsögur
TRYGGVI EMILSSON
BLÁ AUGU OG BIKSVÖRT
HEMPA
Tryggvi Emilsson
Örlagasaga einstaklinga og þjóðar
þar sem raunsannir atburðir og
þjóðsagnakenndir renna saman í
eina listræna heild. Sagan af
prestinum sem missir hempuna
vegna vinnustúlkunnar með bláu
augun er heillandi og grípandi.
Innsæi í mannlegar tilfinningar,
breyskleika og styrk, skín af frá-
sögninni. Frásagnarlist Tryggva er
einstök, tungumálið fjölskrúðugt,
gaman og alvara haldast ávallt í
hendur.
240 blaðsíður.
Stofn, dreiflng Vaka-Helgafell.
Verð: 2480 kr.
RAUÐIR DAGAR
Einar Már Guðmundsson
Ung stúlka flyst að heiman til að
hefja sjálfstætt líf í Reykjavík.
Sögusviðið er höfuðborgin um
1970 umflotin þeim ókyrru straum-
um sem þá orkuðu á ungt fólk.
Húsnæðisskortur, róttækni, upp-
reisnargirni og ekki síst ástin ráða
hér rikjum á tímum sem lítt hefur
verið sinnt til þessa í bókmenntum.
Einar snýr að okkur nýrri hlið í
þessari skemmtilegu ástarsögu.
226 blaðsíður.
Almenna bókafélagið.
Verð: 2282 kr.
Skáldsaga eftlr ÓSK.4R .4Ð.4LSTEIN
STÚLKAN MÍN í FJÖRUMNI
Sbáldsaga eftir ÞORVARÐ HELGASON
MEFISTO Á MEÐAL VOR
Auður Ingvars
Furðuleg fjarstæðusaga um glæpi
og spillingu á nútíma Fróni. Það er
ótrúlegt að kynnast því, hvernig ís-
land getur ummyndast fyrir óheftu
hugmyndaflugi í spillingarbæli,
ormagarð, hreinasta helvíti. - Fár-
ánlegt munu menn segja, en höf-
undurinn, sem hér kemur fram á
svið í fyrsta sinn nemur þetta í
næmi upp úr daglegum fréttum um
svikamál, gjaldþrot, manndráp,
íkveikjur, vændi, sifjaspell. Höf-
undurinn þorði að skrifa það. Það
þarf líka dirfsku til að lesa það.
176 blaðsíður.
FjölviA/asa.
Verð: 2280 kr.
MJÖLL - STÚLKAN í
FJÖRUNNI
Óskar Aðalsteinn
Náttúrunæm skáldsaga hins nátt-
úruelska höfundar, sem forðum
var vitavörður á ystu nöf í Galtar-
vita. Hin hamslausu náttúruöfl eru
að verki undir Víkurhyrnu með
dynjandi snjóflóði, og hamslausar
ástríður, þar sem sjúkleg fíkn setur
allt í rúst. Þar fær ástin ein læknað
og sigrað. Sagan af stúlkunni Mjöll
í sjávarþorpinu. Víst elskum við
hana. Besta og hnitmiðaðasta bók
höfundar, lýsir harðri lífsbaráttu.
Ósvikin sagnalist.
185 blaðsíður.
Fjölvi/Vasa.
Verð: 2280 kr.
BLEIKFJÖRU-BLÚS
Þorvarður Helgason
íslensk nútímasaga með mögnuð-
um sálrænum átökum. Fjallar um
hjónalíf sem fléttast saman. Hefst í
steikjandi hita á suðrænni sólar-
strönd, þar sem hópur íslendinga
ætlar að slappa af, en vandamálin
fylgja með. Það er komið að vega-
mótum og þegar snúið er heim til
íslands, er gengið sitt í hvora átt-
ina, til mannlegrar hamingju eða
tortímingar. Miskunnarlaus en
spennandi skáldsaga. í fyrra gaf
Þorvarður út Svíöa sands augu.
208 blaðsíður.
FjölviA/asa.
Verð: 2280 kr.
íslensku bókmenntaverðlaunin 1990
Ákveðið hefur verið að gera nokkrar breytingar á íslensku bókmennta-
verðlaununum sem forseti Islands afhendir og veitt voru í fyrsta skipti í
ársbyrjun 1990.
í stað þess að veita aðeins ein verðlaun hafa stofnendur ákveðið að
fyrir árið 1990 verði þau tvenn. Annars vegar verða veitt verðlaun fyrir
hverskonar skáldverk, „fagurbókmenntir“, sem svo eru nefndar, hins
vegar fyrir fræðirit, handbækur eða annarskonar bókmenntir.
Heildarfjárhæð verðlaunanna verður hin sama og næstliðið ár, ein
milljón, og koma þá 500 þúsund í hvorn hlut.
Fyrirkomulag verður að öðru leyti svipað og síðast. Útgefendur til-
nefna þær bækur sem þeir vilja að komi til álita. Dómnefndir velja úr
þeim, sjö bækur í hvorum flokki, og verður tilkynnt um það val snemma
í desember. Síðan velur lokadómnefnd tvær verðlaunabækur í janúar-
febrúar og verður þá tilkynnt við hátíðlega athöfn hverjar hafa orðið
hlutskarpastar.
Eins og rækilega var tekið fram í stofnskrá verðlaunanna er til þeirra
stofnað til að hvetja alla sem að sköpun og útgáfu vinna til þess að
leggja sig fram um vandaðar bókmenntir. Þetta hafa menningarþjóðir
gert um langan aldur og það er enginn vafi á að Islensku bókmennta-
verðlaunin munu er tímar líða hafa þau áhrif sem til var stofnað og
halda áfram að vekja athygli þjóðarinnar á því sem best er gert hverju
sinni.