Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Blaðsíða 42
Ma treiðslubækur
Aö megrast . ' ^
og fitna aldrei aftur ^
MEGEffl'"
IAF0NGUM
í TOPPFORMI
Harvey og Marilyn Daimond
Diamond-hjónin eru nú fremst í
flokki bandarískra heilsuræktar-
manna. Þau voru bæði offitungar,
sem leituðu sér hjálpar við of-
þyngslum og þreytu, hittust þá og
tóku saman og hófu rannsóknir á
mataræði og lífshegðun. Þau gefa
ekki auðveldar lausnir, en hafa
fundið upp mikilvæg ráð, sem
beinast að neyslu ávaxta og græn-
metis, en sérstaklega að því,
hvernig við blöndum fæðuna. Þau
ráðleggja okkur að taka upp nýjan
lífsstíl og heilsufæði.
240 blaðsíður.
Fjölvi/Vasa.
Kilja: 1030 kr.
KÍNVERSK MATREIÐSLA -
ÍTÖLSK MATREIÐSLA
Caroline Ellwood - Mary
Reynolds
Fyrstu bækurnar í nýjum bóka-
flokki: Bókasafn Eldhússins. Um
100 uppskriftir eru í hvorri bók og
fylgja litmyndir hverri uppskrift.
Hér er hægt að kynnast matreiðslu
annarra þjóða á ódýran hátt. Allar
uppskriftir hafa verið reyndar af ís-
lenskum matreiðslumanni. Allt
sem nota þarf í réttina er fáanlegt í
betri matvöruverslunum.
96 biaðsíður hvor bók
Skjaldborg hf.
Kilja: 650 kr.
MATREIÐSLUBÓK IÐUNNAR
Anne Willan
Þessi vandaða og glæsilega bók
er ítarlegasta, umfangsmesta og
greinarbesta bók um mat og mat-
argerð sem út hefur komið á ís-
lensku, ótæmandi sjóður af upp-
skriftum, hugmyndum, leiðbeining-
um, upplýsingum og fróðleik og
ómissandi á hverju heimili. Auk
þess að vera alhliða uppflettirit
sem kennir byrjendum jafnt sem
lengra komnum allar undirstöðu-
aðferðir í matargerð og leiðir þá
inn á nýjar brautir, er bókin veisla
fyrir augað og ánægjuleg lesning.
528 blaðsíður.
Iðunn.
Verð: 7480 kr.
INDVERSK MATREIÐSLA -
FRÖNSK MATREIÐSLA
Naomi Good - Caroline
Ellwood
Tvær bækur úr bókaflokknum:
Bókasafn Eldhússins. Þessi bóka-
flokkur er ekki eingöngu fyrir sæl-
kera hann er ætlaður öllum þeim
sem vilja auka þekkingu sína á
matargerð og bjóða öðrum upp á
nýjungar í matargerð. Matreiðslu-
bækur fyrir almenning á mjög
góðu verði.
96 blaðsíður hvor bók
Skjaldborg hf.
Kilja: 650 kr.
ÚRVALSRÉTTIR -
Gestgjafinn
íris Erlingsdóttir ritstýrir
Glæsileg íslensk matreiðslubók
sem byggð er á efni úr hinu geysi-
vinsæla tímariti, Gestgjafanum. í
bókinni eru fjölmargar uppskriftir
að réttum sem henta við ýmis
tækifæri, auk þess sem nokkrir-
kunnir íslendingar leggja fram
matseðla sína í gestgjafaboðum.
Bókin er öll litprentuð.
128 blaðsíður
Fróði hf.
Verð: 3480 kr.
(Eftir
kenjum kokksins
Úr eldliúsi Riinars Mmvinssonar Við Tjömina
EFTIR KENJUM KOKKSINS
Uppskriftir úr eldhúsi Rúnars
Marvinssonar
Enginn matreiðslumeistari hefur
enn ógnað ríki Rúnars Marvins-
sonar í veitingahúsinu Við Tjörn-
ina. Hér er að finna fjölbreytt safn
uppskrifta úr eldhúsi hans og meg-
ináhersla er á þá stórkostlegu
sjávarrétti sem bera hróður hans
víða. í augum hans er hver réttur
sjálfstætt listaverk. Hér eru einnig
kaflar um súpur, forrétti, villibráð,
fugla og eftirrétti. Litmyndir af öll-
um réttum í bókinni.
128 blaðsíður
Forlagið
Verð: 2980 kr.
MEGRUNí ÁFÖNGUM
Martin Katahn Ph.D.
Draumur flestra sem vilja megrast
er að ná tökum á sjálfum sér á
þann veg að þeir megrist og fitni
aldrei aftur. Þessi bók byggir á 10
ára rannsóknum við Vanderbilt há-
skólann í Bandaríkjunum. Ef fylgt
er ráðleggingum sem skýrðar eru í
bókinni geta áhrifin verið þyngdar-
tap frá 300 til 450 grömm á dag.
Handhæg vasaútgáfa af matseðl-
um sem taka má úr bókinni og
hafa meðferðis til leiðbeininga
hvenær sem til þarf að taka.
270 blaðsíður
Skjaldborg hf.
Verð: 2003 kr.
SÚPUR OG POTTRÉTTIR
Annette Wolter
Charlotta M. Hjaltadóttir
íslenskaði
Níunda Krydd-matreiðslubókin.
Tærar súpur, fínar rjómalagaðar
súpur grænmetissúpur og matar-
miklir pottréttir. Fjölmargar freist-
andi uppskriftir, fljótlegir og ein-
faldir hversdagsréttir eða íburðar-
miklir veisluréttir. Litmynd fylgir
hverri uppskrift, ásamt upplýsing-
um um næringargildi réttanna.
Uppskriftir prófaðar í tilraunaeld-
húsi.
140 blaðsíður
Bókaútgáfan Krydd í tilveruna
Verð: 1800