Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Blaðsíða 25

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Blaðsíða 25
Pýddar barna- og unglingabækur -03 NlSKI HANINN Emil Ludvik og Zdenék Miler Gullfalleg tékknesk myndabók eftir sömu höfunda og LATA STELP- AN sem allir muna eftir. Litríkar myndir og smellin saga um han- ann og hænuna sem skiptu öllum krásum jafnt á milli sín. En dag einn geröist haninn nískur og eig- ingjarn og það kemur honum í koll. Allt fer þó vel að lokum því hænan góða bregst honum ekki hvað sem á gengur. Hallfreður Örn Eiríksson þýddi. 32 blaðsíður. Mál og menning. Verð: 880 kr. PÉTUR OG ÚLFURINN Sergei Prokofief Sígild barnasaga þar sem höfund- ur færir í orð tónverk sitt um Pétur sem gengur út á engið og horfir á fuglana og dýrin sem ógna hvert öðru. Hættulegastur er úlfurinn sem getur étið þau öll og Pétur með. Með kænsku tekst Pétri að lokka úlfinn í snöru og færa hann í dýragarðinn með aðstoð veiði- mannanna, svo loks eru dýrin óhult. Alda Ægis þýddi. 60 blaðsíður. Mál og menning. Verð: 780 kr. ALADDÍN OG TÖFRALAMPINN Alison Claire Darke Endursögn á einu þekktasta ævin- týrinu úr Þúsund og einni nótt við glæsilega myndskreytingu bresks listamanns. Aladdín er fátækur drengur sem tekst að losna undan valdi illviljaðs töframanns. Með að- stoð töfralampans sem hann finn- ur í undirheimum kemst hann til æðstu metorða í Persíu en galdra- maðurinn er grænn af öfund og hyggur á hefndir. Silja Aðalsteins- dóttir gerði íslensku endursögnina. 36 blaðsíður. Mál og menning. Verð: 780 kr. 1, 2, 3 . . . LÆRUM AÐ TELJA Roger Paré Pakki sem inniheldur bók og myndapör sem hafa það takmark að kenna börnum að meðhöndla tölurnar frá einum og upp í tíu. í bókinni er léttur, rímaður texti með fallegri, markvissri myndskreytingu sem gefur tilefni til að telja ýmsa hluti. Myndapörin má nota á marg- víslegan hátt og fylgja þeim skýrar leiðbeiningar um talnaleiki. Árni Sigurjónsson og Hildur Hermóðs- dóttir þýddu. Mál og menning. Verð: 980 kr. á ES.TRARHESTAR D m Börnin í Ólátagaröi DIMMA, DIMMA HÖLLIN Ruth Brown Falleg, óvenjuleg myndabók sem sýnir lesendum inn í draugalega höll. En sem betur fer er allt í plati, dimma, dularfulla höllin er ekkert hættuleg, og allir geta andað léttar í lokin. Bókin hæfir börnum á leik- skólaaldri. Hildur Hermóðsdóttir þýddi. 26 blaðsíður. Mál og menning. Verð: 780 kr. HÖLDUM VEISLU, EINAR ÁSKELL! VAR ÞAÐ VOFA, EINAR ÁSKELL? Gunilla Bergström Nýjar og skemmtilegar bækur um vinsæla grallaraspóann, Einar Áskel, sem börn á leikskólaaldri fá aldrei nóg af. Höldum veislu, Einar Áskell! segir Fía frænka. Hún hjálpar Einari að halda upp á af- mælið hans og allir skemmta sér konunglega. I bókinni Var það vofa, Einar Áskell? yfirvinnur Einar Áskell óttann við drauga. Sigrún Árnadóttir þýddi. 28 blaðsíður hvor bók. Mál og menning. Verð 740 kr. hvor bók. LITLIR LESTRARHESTAR Flokkur af ríkulega myndskreyttum úrvalssögum sem eru prentaðar með stóru letri og góðu línubili og því tilvalið lesefni fyrir börn sem farin eru að lesa sjálf. Bækurnar eru allar sþennandi og gaman- samar, í ár koma út: Hókus pókus Einar Áskell eftir Gunillu Bergström, 59 bls. Börnin í Olátagarði eftir Astrid Lindgren, 131 bls. Stubba litla fer til sjós eftir Jon Hoyer, 106 bls. Fleiri sögur af Frans eftir Christine Nöstlinger, 56 bls. Mál og menning. Verð: 780 kr. hver bók KARÓLlNA OG LITLU JÓLIN / KARÓLÍNA OG RIGNINGIN Laura Voipio og Virpi Pekkala Nýjar bækur um Karólínu, glettnu söguhetjuna sem í hverri bók lend- ir í spennandi ævintýrum með vin- um sínum og lærir stöðugt eitthvað nýtt og gagnlegt. Vinsælar og góð- ar bækur fyrir 2-6 ára börn. Hildur Herrhóðsdóttir þýddi. 24 blaðsíður hvor bók. Mál og menning. Verð: 650 kr. Kilja: 450 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Íslensk bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.