Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Blaðsíða 16

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Blaðsíða 16
Linda Vilhjélmsdóttir BLÁÞRÁÐUR BLÁÞRÁÐUR Llnda Vilhjálmsdóttir Fyrsta Ijóðabók Lindu sem vakið hefur verðskuldaða athygli fyrir Ijóð í blöðum og tímaritum. Óvenju- legar samlíkingar, sterkir litir og undirfurðulegur húmor einkenna kvæðin í þessari bók. Eilíf yrkisefni á borð við ástina og náttúruna fá á sig nýjan blæ og af hversdagsleg- um hlutum kvikna falleg Ijóð. 43 blaðsíður. Mál og menning. Verð: 1680 kr. Kilja: 1380 kr. SKUGGAR VINDSINS Stefán Sigurkarlsson Ljóð Stefáns einkennast af þýð- leika og þokka og dálítið fjar- stæðukenndri gamansemi á köfl- um. Víða beitir hann hnífsbragði rómantískrar íróníu með góðum árangri, en annars staðar sýnir hann á sér alvarlegri hliðar. Sam- merkt eiga svo Ijóð hans öll þá myndvísi og fágun sem er aðal góðs skáldskapar. 44 blaðsíður. Mál og menning. Verð: 1680 kr. Kilja: 1380 kr. Guðlaugur Arason Blint í sjóinn BLINT í SJÓINN Guðlaugur Arason Þetta er fyrsta Ijóðabók Guðlaugs, en hann er löngu landskunnur fyrir skáldsögur sínar. í Ijóðunum er víða að finna hversdagsmyndir af sjómannslífinu, en einnig yrkir Guðlaugur um söknuðinn, erfiði og mannraunir, og ástina. Ljóðin ein- kennast af nærfærnum og mildum tóni, þótt kímni sé sjaldan langt undan. 73 blaðsíður. Mál og menning. Verð: 1680 kr. Kilja: 1380 kr. BAK VIÐ HAFIÐ Jónas Guðlaugsson Þessi bók hefur að geyma 40 Ijóð Jónasar Guðlaugssonar sem kvaddi sér hljóðs á öndverðri öld- inni sem afar efnilegt skáld. Ljóðin í þessari bók orti hann um tvítugt, þau eru ofin af undraverðum næmleik úr heitum tilfinningum, stórum draumum og óbeisluðum löngunum ungs listamanns. Hrafn Jökulsson sá um útgáfuna og ritar inngang um ævi og skáldskap Jónasar. 94 blaðsíður. Mál og menning/Flugur. Verð: 1980 kr. IOD l D n JRADDIRU M0RGUÍ16IH5 i GUfflARDAL RADDIR MORGUNSINS Gunnar Dal Ljóðasafn - úrval Ijóða Gunnars Dals, skálds og heimspekings. „Lifandi skáldskapur, tær og skýr og hefur yfir sér heiðríkju heil- brigðrar lífssýnar.“ 192 blaðsíður. Æskan. Verð: 2360 kr. BJÖRG ÖRVAR I sveit sem ereinsog aðeins fyrir sig LJÓÐAKVER í SVEIT SEM ER EINSOG AÐEINS FYRIR SIG Björg Örvar Björg Örvar hefur undanfarin ár helgað sig myndlistinni og haldið fjölmargar sýningar. Nú sendir hún frá sér sína fyrstu Ijóðabók. Hér er á ferðinni kraftmikil og frumleg Ijóðabók eftir þroskaða listakonu sem ber með sér ferska strauma inn I íslenska Ijóðagerð. 64 blaðsíður. Bókaútgáfan Bjartur. Kilja: 1620 kr. Ljóð og laust mál LJÓÐ OG LAUST MÁL Hulda Úrval af kvæðum og sögum Unnar Benediktsdóttur Bjarklind, sem fræg varð undir skáldanafninu Hulda. Hún var mikilvirkasti kven- rithöfundur okkar á fyrri hluta þessarar aldar og frumlegt og list- rænt skáld. Guðrún Bjartmarsdótt- ir valdi efnið, en bókin er níunda bindi I flokknum íslensk rit, gefin út I samvinnu við Bókmenntafræði- stofnun Háskóla Islands. ítarlegar heimildaskrár um ritverk Huldu. 330 blaðsíður. Bókaútgáfa Menningarsjóðs. Verð: 2750 kr. LJÓÐ NÁMU VÖLD Sigurður Pálsson Sigurður er ótvírætt í fremstu röð Ijóðskálda og hver ný Ijóðabók frá hans hendi er bókmenntaviðburð- ur. Þetta er þriðja bókin í flokki Ijóðnámubókanna og þar með lok- ar hann Ijóðnámuhringnum. Lífs- kraftur, innsæi og óvæntar samlík- ingar einkenna Ijóð Sigurðar. Hér er margt í senn: ísmeygileiki, ofsa- fenginn galsi og sár alvara. í end- urnýjun íslensks Ijóðmáls standa fáir Sigurði Pálssyni á sporði. 72 blaðsíður. Forlagið. Verð: 1680 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Íslensk bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.