Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Blaðsíða 19

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Blaðsíða 19
Bama- og unglingabækur TQ SOLLA BOLLA OG TÁMlNA - Jólaskemmtunin Elfa Gísla og Gunnar Karlsson Allir kátir krakkar þekkja vinkon- urnar óaöskiljanlegu, Sollu bollu og Támínu, og uppátækin þeirra. Það eru að koma jól og Solla bolla á að fá að leika jólasvein á jóla- skemmtuninni. En það líst Táminu ekki vel á - ekki nema hún fái að vera jólasveinn líka! Hvað á nú að taka til bragðs? Hvernig getur tá verið jólasveinn? Þetta er fjörug og skemmtileg frásögn sem hrífur hug og hjörtu allra barna. 32 blaðsíður. Iðunn. Verð: 878 kr. NÚ HEITIR HANN BARA PÉTUR Guðrún Helgadóttir Þetta er undur Ijúf og falleg bók fyrir yngstu börnin eftir Guðrúnu Helgadóttur sem hér segir söguna af honum Pésa. Hann lenti í svo- litlum vandræðum þegar hann einu sinni sem oftar fór að gefa öndunum á tjörninni. Þær litu ekki við brauðinu hans. En hvað gerir Pési þá? Litla leyndarmálið hans Pésa verður að ævintýri sem börn- in vilja heyra aftur og aftur. Bókin er ríkulega myndskreytt af Herði Helgasyni. Iðunn. Verð: 980 kr. AFI GAMLI JÓLASVEINN Brian Pilkington Hann Haraldur er í nokkuð óvenju- legu starfi. Hann er nefnilega jóla- sveinn! Og það er sannarlega skemmtilegt starf. En það hefur einn galla: Þegar jólin eru um garð gengin hefur enginn þörf fyrir jóla- svein - ekki fyrr en eftir næstum heilt ár. Og hvað gera jólasvein- arnir þá þegar jólin eru búin? Hvar getur gamall og síðskeggjaður karl fengið vinnu? Þetta er fjörleg og fyndin saga með fjölda bráð- skemmtilegra mynda eftir höfund- inn. 32 blaðsíður. Iðunn. Verð: 878 kr. UNDAN ILLGRESINU Guðrún Helgadóttir Enginn gat vitað yfir hvaða leynd- ardómum gamla gráa húsið bak við stóru gömlu trjákrónurnar bjó. Marta Maria hefur ekki átt heima þar lengi þegar forvitni hennar er vakin og undarlegir hlutir valda henni heilabrotum. Hér er komin ný bók eftir Guðrúnu Helgadóttur sem beðið hefur verið með eftir- væntingu og ná mun til enn fleiri lesenda en fyrri bækur hennar. Af nærfærni, kímni og hlýju segir Guðrún hér hörkuspennandi og dulúðuga sögu á þann hátt sem henni einni er lagið. Iðunn. Verð: 1480 kr. VÍSNABÓK IÐUNNAR Engin bók er betri gjöf handa ungu barni en Vísnabók Iðunnar og eng- in bók er betur fallin til að lesa fyrir börnin, því að hér er að finna allar þekktustu barnavísurnar og söngv- ana, bæði gamlar barnagælur, þulur og kvæði sem geymst hafa með þjóðinni um ár og aldir ásamt fjölda gullfallegra nýrri visna og Ijóða, sem sungin eru við börn og með börnum. Þetta er bók fyrir for- eldra og börn að njóta saman, skoða, lesa, raula og syngja. Mikill fjöldi teikninga prýðir bókina. 80 blaðsíður. Iðunn. Verð: 1280 kr. PLATAFMÆLIÐ lllugi Jökulsson Það er enginn hægðarleikur fyrir tvo fjöruga krakka að læðast um á tánum meðan mamma er að leggja sig. Allra síst þegar mamma þarf að leggja sig á hverjum degi. Tómas og Alexandría eru systkini og saman bralla þau ýmislegt þeg- ar enginn sér. Einn góðan veður- dag fá þau skrýtna hugmynd - og þá er ekki setið við orðin tóm held- ur hafist handa . . . Sagan er prýdd bráðskemmtilegum mynd- um eftir Gunnar Karlsson. 46 blaðsíður. Iðunn. Verð: 988 kr. RAGGI LITLI I JÓLASVEINALANDINU Haraldur S. Magnússon Sagan af Ragga litla og jóla- sveinafjölskyldunni er fjörug saga sem lýsir heimilislífinu i hellinum hjá Grýlu, Leppalúða og sonum þeirra, jólasveinunum. Hvað er það sem Grýla er að sjóða í stóra pottinum sinum. Og hvað er í pok- unum sem hanga niður úr hellis- loftinu? Óþekk börn? Nei, það eru þrettán skrýtnir karlar með eldrauð nef . . . í þessari spaugilegu jóla- sögu eru margar bráðskemmtileg- ar teikningar eftir Brian Pilkington. 32 blaðsíður. Iðunn. Verð: 878 kr. BÓKASAFN BARNANNA BANGSI í LÍFSHÁSKA Árni Árnason Anna Cynthia Leplar BANGSI í LÍFSHÁSKA DREGIÐ AÐ LANDI Árni Árnason LANGAMMA Þórður Helgason UNGINN SEM NEITAÐI AÐ FLJÚGA Birgir Svan Símonarson - Bókasafn barnanna er nýr flokk- ur léttlestrarbóka. Allt ríkulega myndskreyttar, skemmtilegar sög- ur prentaðar með stóru letri og góðu línubili fyrir börn sem eru að byrja aö lesa. Anna Cynthia Lepl- ar, Margrét Laxness og Halldór Baldursson myndskreyttu. 24 blaðsíður hver bók. Mál og menning. Verð: 350 kr. hver bók.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Íslensk bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.