Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Blaðsíða 32

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Blaðsíða 32
32 Ævisögur og endurminningar HERNÁMIÐ hin hliðin Louis E. Marshall, Áslaug Ragnars bjó til prentunar Höfundur var yfirmaður í Banda- ríkjaher á Islandi og segir frá hinni hliðinni á hernáminu og þjóðinni sem hér bjó. Glöggt er gestsaug- að. Hvaðan komu ís, popp og tóm- atsósa? Hvað vita íslendingar um svartamarkaðsbraskið? Skotfæra- geymsluna sem næstum lagði Reykjavík í rúst? Minkapelsana sem brunnu á Hótel íslandi? Sagt er frá brostnum vonum og „ástandsbörnurrT en höfundur á einmitt eitt af þeim. 198 blaðsíður. ísafold. Verð: 1990 kr. KONUHJARTA Maya Angelou Þetta er fjórða bindi hinnar hug- næmu sjálfsævisögu Mayu Angel- ou. Tilvera hennar hefur tíðast ver- ið grimm og hún þurfti að beita öll- um sínum ráðum til að verða ekki undir í baráttunni fyrir lífi sínu og sonar síns. Hún er óskólagengin og eignast son sinn seytján ára gömul. En hún yfirstígur alla erfið- leika og menntar sig sjálf í skóla lífsins. 271 blaðsíða. Skjaldborg hf. Verð: 1980 kr. MARGIR VILDU HANN FEIGAN Kristján Pétursson löggæslumaður Kristján er lang þekktasti lög- gæslumaður seinni tíma á íslandi. Hann hefur stjórnað rannsóknum á helstu sakamálum og átt stærst- an hlut í að upplýsa þau. Hann hefur aftur og aftur rakið mál til fyr- irmanna í samfélaginu og þá verið stöðvaður. Hann lét illa að stjórn enda fór hann sínar eigin leiðir. Þessi bók staðfestir margvíslega spillingu í íslensku réttarfari. 234 blaðsíður. Skjaldborg hf. Verð: 2890 kr. ÞURRT OG BLAUTT AÐ VESTAN Björn Jónsson læknir - Bjössi bomm Síðara bindi ævisögu Bjössa bomm. Hann segir frá skólaárum á Akureyri og í Reykjavík og ekki sist frá læknisstörfum í Vesturheimi. Bjössi bomm er ekki venjulegur maður en hann er hreinskilinn við sjálfan sig og aðra. Hann segir frá drykkjuskap og daðri við fallegar konur. Læknir á meðal indíána og varð þá að gera ýmislegt sem ekki mundi viðurkennt í Skagafirði, en Bjössi er og verður Bjössi bomm. 390 blaðsíður. Skjaldborg hf. Verð: 2890 kr. BETRI HELMINGURINN Margir Frásögn kvenna er giftar eru þekktum einstaklingum. Unnur Ól- afsdóttir, maki séra Pálmi Matthí- asson, Sigríður Hafstað, maki Hjörtur E. Þórarinsson bóndi Tjörn, Ólafía Ragnarsdóttir, maki Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogi, Gunnþórunn Jónsdóttir, maki Óli Kr. Sigurðsson, forstjóri Olís, Helga Jóhannsdóttir, maki Ómar Ragnarsson, fréttamaður. 220 blaðsíður. Skjaldborg hf. Verð: 2488 kr. VÖKUNÓTT FUGLSINS Matthías Johannessen Bókin er að meginhluta viðtöl sem Matthías Johannessen átti við tvo vini sína sem báðir voru úr hópi okkar mestu listamanna, þá Tóm- as Guðmundsson og Jóhannes Sveinsson Kjarval. Vökunótt fugls- ins er einhver listrænasta viðtals- bók sem við eigum enda skráð af okkar mesta meistara á sviði slíkra bókmennta. 236 blaðsíður. Almenna bókafélagið. Verð: 2595 kr. ÍSLENSKIR HERMENN Sæmundur Guðvinsson Þótt hér sé enginn her hafa allmarg- ir íslendingar gegnt herþjónustu. í þessari bók ræðir Sæmundur Guð- vinsson meðal annars við íslending sem var foringi í Bandaríkjaher í Kóreustríðinu, liðsforingja í land- gönguliði bandáríska flotans sem barðist í Víetnam mánuðum saman, fyrrum meðlim í friðargæslusveitum Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, mann sem var í her Rhodesíu og ís- lenskan kappa sem barðist með breska flughernum í heimsstyrjöld- inni síðari og komst oft í hann krappan. Almenna bókafélagið. Verð: 2182 kr. GALÍNA rússnesk saga Galína Vishnevskaja Guðrún Egilson þýddi. Ljóð þýddi Geir Kristjánsson Galína Vishnevskaja er fæddur sögumaður. Hún lýsir í þessari þók hvernig hún rís úr örbirgð í barn- æsku og verður ein eftirsóttasta söngstjarna Sovétríkjanna. En hún gerir meira en að lýsa eigin lífi. Galína segir einnig sögu Sovétríkj- anna. Hún dregur upp lifandi mynd af lífi í Rússlandi Stalínismans, sýnir neyðina í borgunum, hreins- anirnar, herkví nasista, hungrið og Stalín sjálfan. 382 blaðsíður. Almenna bókafélagið. Verð: 2843 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Íslensk bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.