Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Blaðsíða 28
28 Pýddar barna- og unglingabækur
Depillgistir
einanótt
(FALLI OG TOeei)
Æ! HVAÐA VANDRÆÐI!
8166! og yieen
OFSJÓNIR AFA GAMLA
HJÁ AFA OG ÖMMU
ÞRÍR LITLIR GRÍSIR
DRAUMALANDIÐ
Þessar þrjár bækur eru allar nýjar í
flokknum Skemmtilegu smábarna-
bækurnar. Sigurður Gunnarsson
og Stefán Júlíusson hafa þýtt þær
úr ensku. Myndir í 4 litum á hverri
blaðsíðu. Nokkrar bækur í flokki
þessum hafa komið út í meira en
40 ár. í haust kom t.d. Stubbur (4)
út í 8. útgáfu. Skemmtilegu smá-
barnabækurnar eru nr. 1-25 og
fást a.m.k. 20 í bókaverslunum.
24 blaðsíður.
Bókaútgáfan Björk.
Kilja: 130 hver bók.
príns Valiant
Xeiýin xil'Pokmm
FJOLVA c^Jsút GAFA
PRINS VALÍANT
Harold R. Foster
Hin heimsfræga teiknisagnaröð
um Prins Valíant heldur stöðugt
áfram. Hún er listilega teiknuð og
svo æsispennandi að hún hrífur
huga lesandans. Hún gerist á dög-
um Arthúrs konungs og er riddara-
saga. Nú koma út þrjár nýjar bæk-
ur: Nr. 8 Prinsinn af Thúle, Nr. 9
Leiðin til Þokueyja, Nr. 10 Sigur Al-
etu. í þessum bindum er sagt frá
yndislegustu atriðunum, ástum
Prins Valíants við Aletu drottningu.
48 blaðsíður.
Fjölvi/Vasa.
Kilja: 680 kr.
DEPILL GISTIR EINA NÓTT
Eric Hill
Ný barnabók um Depil, sem nú
fær að gista eina nótt hjá Stebba
vini sínum. Eins og fyrri bækurnar
um Depil er þessi bók tilvalin fyrir
börn sem byrjuð eru að lesa og
ekki síður fyrir foreldra til að lesa
fyrir börnin.
Bókaforlag Odds Björnssonar.
Verð: 700 kr.
ÆVINTÝRAVINURINN GÓÐI
H.C. Andersen
Fjölvi byrjar útgáfu nýrrar ritraðar.
Það eru forkunnarfagrar mynd-
skreyttar útgáfur á ævintýrum
listaskáldsins H.C. Andersens.
Sögur hins danska ævintýraskálds
eru alltaf jafn fagrar og vekjandi.
Nú í fyrstu umferð koma út fjórar:
Næturgalinn, Ljóti andarunginn,
Litli Kláus og Stóri Kláus og Það er
alveg áreiðanlegt. Smámsaman
mynda þessar bækur Ævintýra-
klúbb unga fólksins.
32 blaðsíður.
Fjölvi/Vasa.
Verð: 780 kr.
Æ, HVAÐA VANDRÆÐI, PALLI
OG TOGGI
HERGÉ
Allir þekkja nú orðið Palla og
Togga - prakkarana prúðu. Bráð-
skemmtilegar teiknisögur eftir Her-
gé - höfund Tinnabókanna. Eins
og venjulega eru Palla- og Togga-
bækurnar með marga stutta
brandara, tekur hver skrítla eina
opnu. Nýjasta bókin heitir Æ,
hvaða vandræði. Hér er auðvitað
allt morandi í bröndurum eins og
hinar óborganlegu frásagnir úr
Draumaveröld Togga og Lögga
Nr. 15 hjálpar til.
50 blaðsíður.
Fjölvi/Vasa.
Verð: 780 kr.
SIGGI OG VIGGA
Willy Vandersteen
Nýjar teiknisögur af kátu krökkun-
um Siggu og Viggu, sem koma
víða við. Þau ferðast bæði í tíma
og rúmi og hvort sem er til Ind-
lands eða Regnbogalandsins. Þau
glíma líka við álfa og ófreskjur,
löggur og geimverur. Og ekki
versnar það þegar kapparnir
Lambi og Vambi koma til sögunn-
ar: Sex nýjar eru á boðstólum: 1)
Ofsjónir afa gamla, 2) Stálháfurinn
stælti, 3) Regnbogaland, 4) Gull-
æðið geggjaða, 5) Kynjakristallinn,
6) Hindúahofið.
60 blaðsíður.
Fjölvi/Vasa.
Kilja: 480 kr.