Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Blaðsíða 35
Mynd af einum mesta listamanni sem
íslenska þjóðin hefur eignast; járnsmiðnum
frá Akureyri sem fórnar öllu fyrir óvissa
framtíð í hörðum heimi óperunnar þar sem
honum tekst með fágætum viljastyrk að
komast í fremstu röð í heiminum.
Maðurinn, listamaðurinn og eldhuginn er
viðfangsefni þessarar tæpitungulausu frá-
sagnar. Kristján rekur hér af einstakri
hreinskilni og hispursleysi æsku sína og
uppvöxt, segir frá vonbrigðum sínum og
glæstum sigrum á sviði og utan, frá ástríðu
og sorgum, Ijóma sviðsljósanna og skuggum
öfundar og umtals.
Garðar Sverrisson vakti mikla athygli fyrir
metsölubókina ”Býr Islendingur hér“ en
saga hans um Kristján Jóhannsson er mjög
grípandi og feikilega vel skrifuð.
Ný skáldsaga eftir Steinunni Sigurðardóttur
Síðasta orðið
í þessari margslungnu og áleitnu skáldsögu
stíga ættmenni landlæknisdótturinnar glæsi-
legu, Öldu ívarsen, fram á sjónarsviðið, eitt af
öðru, séð með gleraugum samferðamanna
sinna, og þetta er mikill ættbogi, "þrútinn af
lítillæti, manngæsku og stórhug", en byrgir
bresti sína og leyndarmál bak við luktar dyr.
Öllu þessu lýsir Steinunn Sigurðardóttir á
frumlegan og óvæntan hátt,
þar sem ofíð er saman
ísmeygilegri kímni, nöpru
háði og einlægri samúð.