Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Page 35

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Page 35
Mynd af einum mesta listamanni sem íslenska þjóðin hefur eignast; járnsmiðnum frá Akureyri sem fórnar öllu fyrir óvissa framtíð í hörðum heimi óperunnar þar sem honum tekst með fágætum viljastyrk að komast í fremstu röð í heiminum. Maðurinn, listamaðurinn og eldhuginn er viðfangsefni þessarar tæpitungulausu frá- sagnar. Kristján rekur hér af einstakri hreinskilni og hispursleysi æsku sína og uppvöxt, segir frá vonbrigðum sínum og glæstum sigrum á sviði og utan, frá ástríðu og sorgum, Ijóma sviðsljósanna og skuggum öfundar og umtals. Garðar Sverrisson vakti mikla athygli fyrir metsölubókina ”Býr Islendingur hér“ en saga hans um Kristján Jóhannsson er mjög grípandi og feikilega vel skrifuð. Ný skáldsaga eftir Steinunni Sigurðardóttur Síðasta orðið í þessari margslungnu og áleitnu skáldsögu stíga ættmenni landlæknisdótturinnar glæsi- legu, Öldu ívarsen, fram á sjónarsviðið, eitt af öðru, séð með gleraugum samferðamanna sinna, og þetta er mikill ættbogi, "þrútinn af lítillæti, manngæsku og stórhug", en byrgir bresti sína og leyndarmál bak við luktar dyr. Öllu þessu lýsir Steinunn Sigurðardóttir á frumlegan og óvæntan hátt, þar sem ofíð er saman ísmeygilegri kímni, nöpru háði og einlægri samúð.

x

Íslensk bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.