Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Blaðsíða 15

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Blaðsíða 15
INNLÖND Hannes Pétursson Fjórða Ijóðabók Hannesar Péturs- sonar, Innlönd, kom fyrst út árið 1968 og er löngu uppseld, enda var henni þegar mjög vel tekið meðal íslenskra Ijóðvina. Hún er nú gefin út að nýju. Hér glímir skáldið markvisst við að túlka þá skynjun sem dýpst og innst stend- ur í persónuleikanum og á raetur í æsku og heimkynnum. Þetta er skáldskapur sprottinn úr reynslu og viðhorfum skálds sem varðveit- ir upprunalegt eðli sitt og tilfinning- ar í ys og þys nútímans. 64 blaðsíður. Iðunn. Verð: 2098 kr. THEWASTE LAND EYÐI LAN D IÐ THE WASTE LAND - EYÐILANDIÐ T.S. Eliot Sverrir Hómarsson þýddi Ljóðabálkurinn The Waste Land er þekktasta stórvirki bandaríska skáldjöfursins T.S. Eliot, seiðandi og margræður skáldskapur sem marga hefur heillað og aðra hneykslað. Sverrir Hólmarsson hefur þýtt þennan kyngimagnaða Ijóðaflokk á íslensku, og birtist sú þýðing hans hér ásamt Ijóði Eliots á ensku og skýringum skáldsins, auk þess sem Sverrir gerir ítarlega grein fyrir Ijóðinu og skáldinu. 78 blaðsíður. Iðunn. Verð: 2280 kr. SIGURLAUGUR ELlASSON J A S P í S JASPÍS Sigurlaugur Elíasson Heildstæður Ijóðaflokkur eftir ungt og efnilegt Ijóðskáld og listamann, þar sem raktar eru minningar um eitt sumar við fjörð fyrir austan, sumarleyfi innan um venjulegt fólk og skáldlegt, þar sem hversdags- lífið fær að njóta sín í skýrum og skarpdregnum myndum. Þetta er mannlífið, séð með hlýju og kímni og lýst í þróttmiklu og frjóu mynd- máli, sem höfundur hefur á valdi sínu. Bók sem verður Ijóðvinum hugstæð. 44 blaðsíður. Iðunn. Verð: 1680 kr. SKIP VONARINNAR Guðrún Guðlaugsdóttir blaðamaður Þetta er önnur Ijóðabók Guðrúnar. Hugleiðingar hennar um eigið líf og veröld okkar allra, með lifandi og kliðmjúku tungutaki og heillandi myndlíkingum. Fyrri Ijóðabók Guð- rúnar nefndist Á leið til þín. Guð- rún er höfundur samtalsbókarinnar Það hálfa væri nóg, um Þórarin Tyrfingsson lækni. 44 blaðsíður. Örn og Örlygur LEITIN AÐ FJARSKANUM Njörður P. Njarðvík „Fjörðurinn heldur áfram að fylgja mér,“ segir höfundur bókarinnar um Ijóðin í síðari hluta bókar sinn- ar, sem hann hefur gefið nafnið Fjörður milli fjalla. Þar eru 19 Ijóð sem lýsa æskustöðvum hans í Skutulsfirði, mannlífi og náttúru. Hinn hluti bókarinnar nefnist Gegnum hugann liggur leiðin og geymir meitlaðar og eftirminnileg- ar Ijóðmyndir sem lýsa leitinni að fjarskanum og að þeim gimstein- um sem ekki koma til móts við leit- anda sinn. 55 blaðsíður. Iðunn. Verð: 1480 kr. EINN DAG ENN Kristján Árnason Fjölbreytt og hrífandi Ijóðabók sem ber þess vitni að höfundur hefur óvenjulegt vald á hefð Ijóðlistar- innar sem og nýjungum hennar. Tónn hans er stundum hátíðlegur og stundum galsafenginn, en alltaf sannur. Auk frumortra Ijóða eru í bókinni þýðingar á Ijóðum 24 heimsþekktra höfunda frá ýmsum tímum. 97 blaðsíður. Mál og menning. Verð: 1680 kr. Kilja: 1380 kr. HINUMEGIN VIÐ SÓLSKINIÐ Elías Mar Ný Ijóðabók frá Elíasi Mar er gleði- efni öllum þeim sem fylgjast með íslenskri Ijóðagerð. í þessari bók reynist Elías enn sem fyrr vanda Ijóðsins vaxinn með sínum sér- stæða hætti. Hann er nærgöngull við Ijóðpersónur sínar, yrkir um angistarblandna sælu þeirra og minnir sífellt á að ekki er allt sem sýnist. í þýðingum víetnamskra og evrópskra Ijóða sýnir skáldið ör- ugg tök sín á máli og stíl. 47 blaðsíður. Iðunn. Verð: 1480 kr. GEIRLAUGUR MAGNÚSSON SANNSTÆÐUR SANNSTÆÐUR Geirlaugur Magnússon Ný bók eftir Geirlaug sem áður hefur gefið út fjölmargar Ijóðabæk- ur. Ljóð hans lifna af sterkum myndum og sérstæðu tungutaki. Hann er enginn boðandi auð- keyptrar bjartsýni og venjulegra sanninda, en fylgi lesandinn hon- um „á svansvængjum svörtum’’ í Ijóðheima, opnast honum víðáttur. 62 blaðsíður. Mál og menning. Verð: 1680 kr. Kilja: 1380 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Íslensk bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.