Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Side 23

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Side 23
Þýddar barna- og unglingabækur HEIÐA Johanna Spyri Sagan um Heiðu er sígild barna- saga sem á erindi við böm á öllum aldri. Hún fjallar á hugljúfan hátt um munaðarlausa stúlku sem flyst til afa síns í svissnesku Ölpunum. Þar kynnist hún heillandi umhverfi sem hún nýtur um sinn uns hún verður að flytja nauðug til fjarlægr- ar borgar. Þrátt fyrir að Heiða læri þar margt saknar hún afa síns, fjallanna og frelsisins. Sagan er fallega myndskreytt. Guðni Kol- beinsson þýddi. 93 blaðsíður. Vaka-Helgafell. Verð: 978 kr. KÓBRAÁRÁSIN Anders Bodelsen Þrír þrettán ára danskir strákar, Dan, Friðrik og Arim verða einn daginn varir við sitthvað undarlegt. Leigubíll sem þeir sjá reynist ekki vera leigubíll, maður með veski úttroðið af stórum peningaseðlum kaupir dúkku og grímu í leikfanga- búð o.s.frv. Enginn vill hlusta á þá þegar þeir segja frá þessu, en fyrr en varir er einn strákanna tekinn sem gísl og ráðherra og fleiri eru í Iffshættu. Bókin hefur verið notuð hér við dönskukennslu. 126 blaðsíður. Örn og Örlygur. Verð: 1490 kr. TÓMSTUNDABÓKIN FRÁ DISNEY Frábær tómstundabók með þraut- um, leikjum, kollgátum og skemmtilegum verkefnum fyrir hressa krakka. Engum leiðist sem hefur þessa bók við höndina því hún er endalaus uppspretta gleði og athafna. Og uppáhaldspersón- ur krakkanna frá Disney spretta af hverri síðu bókarinnar og gefa henni Irf. 192 blaðsíður. Vaka-Helgafell. Kilja: 380 kr. Olavur Michehen Hrossin í Skorrodol HROSSIN í SKORRADAL Ólavur Michelsen Erik Hjort Nielsen myndskreytti Hjörtur Pálsson þýddi Sagan gerist i Færeyjum og Bret- landi. Höfundur lýsir örlögum rauðs fola sem er handsamaður og fluttur til Skotlands eftir að hafa notið frelsis í fjallasal með öðrum stóðhestum sem hann fór fyrir heima í Færeyjum. í sögunni er teflt fram skörpum andstæðum; frelsi og fegurð annars vegar og ómildri meðferð manna á þarfasta þjóninum hins vegar. Myndskreyt- ing bókarinnar er einstök. 32 blaðsíður. Örn og Örlygur. Verð: 790 kr. MarcusPtettr Hundalíf Lubba HUNDALÍF LUBBA Marcus Pfister Helga Einarsdóttir bókavörður þýddi Fjörieg saga með litskrúðugum og skemmtilegum myndum. Lubbi er kátur, loðinn og lubbalegur hundur sem á heima á ruslahaugum. Þar hittir Lubbi kisu og þó að hundar og kettir séu ekki miklir vinir gera þau með sér félag um að hrekja burt rottumar sem éta matinn hans Lubba og striða honum. Það tekst vel og Lubbi kemst að því hve það er mikils virði að eiga sér vin og fé- laga. 32 blaðsíður. Örn og Örlygur. Verð: 790 kr. Róbínson Krúsó RÓBINSON KRÚSÓ Daniel Defoe Einar Georg Einarsson þýddi Hin sígilda saga Defoes um Rób- inson Krúsó sem verður skipreika á eyðieyju og má þar þola súrt og sætt árum saman og lærir að bjarga sér af landsins gæðum. Bókin er glæsilega myndskreytt. 180 blaðsíður. Örn og Örlygur. Verð: 1490 kr. ðn.oeOHjwrhf BERNADETTE VARENKA Bernadette Vilborg Dagbjartsdóttir þýddi Það geisar strið. Fólkið flýr en Var- enka er kyrr til að hlynna að veg- móðum flóttamönnum og fæða dýrin og fuglana þegar vetur geng- ur í garð. Dynur fallbyssanna fær- ist sífellt nær og Varenka skelfist og biður Guð að reisa garð í kring- um húsið sitt, svo háan að grimmu hermennimir sjái það ekki. En læt- ur Guð gerast kraftaverk? Einstak- lega hugljúft og spennandi, rússn- eskt ævintýri, með listavel gerðum myndum. 32 blaðsíður. Örn og Örlygur. Verð: 790 kr. RÁÐGÁTAN í VÍKINNI Enid Blyton Ráðgátubækurnar hafa náð mikl- um vinsældum meðal íslenskra krakka og þessi er ekki síður spennandi og skemmtileg en hinar fyrri. Það þarf ekki að bíða lengi eftir dularfullum atburðum þegar Snúður, Reynir og Dóra fara í fri og dvelja á gistihúsinu „Þrir í bal- anum“ ásamt Matthíasi galdra- manni, Jónasi prófessor, ungfrú Bíbí og söngkonunni írisi næturdís - og svo kemur Bjami vinur krakk- anna með apann Míröndu. Áður en varir hafa þau dregist inn í æsi- spennandi ævintýri. . . 189 blaðsíður. Iðunn. Verð: 1148 kr.

x

Íslensk bókatíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.