Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Page 27
Pýddar barna- og unglingabækur 27
Lykke Nielsen
Fríða Framhleypna
BÓKAÚIGÁFAN SKJALDBORG
SOGUR UR SVEITINNI
I lcather Amer>- og Stephen Cartwright
tJÍ.M.IIARRIE
PETIIRPM
OGVANDA
Ævintýrið
um hina
undursamlegu
kartönu
ANDERS SORENSEN
FRÍÐA FRAMHLEYPNA
SVEI . . . FRÍÐA
FRAMHLEYPNA
FRÍÐA FRAMHLEYPNA í FRÍI
Hún er ekkert venjuleg hún Fríða
framhleypna, hún á tuttugu og þrjá
kærasta og stefnir að því að eign-
ast þrjátíu. Hún er hress hún er allt
að því baldin en hún er frábærlega
skemmtileg. Hún segir og gerir
það sem henni dettur í hug, en
fullorðna fólkið er ekki alveg sátt
við það, afhverju skyldi hún þurfa
að hafa fléttur, það er vont. Og ef
garðklippur eru til, afhverju þá ekki
að nota þær. . .
96 - 102 - 96 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 890 kr. hver bók.
PRINSESSAN Á BAUNINNI -
MJALLHVÍT OG DVERGARNIR
SJÖ - NÝJU FÖTIN
KEISARANS
Ævintýri barnanna er bókaflokkur
sem nýtur sívaxandi vinsælda
meðal yngstu barnanna. Hér eru
sögð sígild ævintýri sem börn hafa
skemmt sér við kynslóð fram af
kynslóð. Ævintýrin eru endursögð
við hæfi yngstu barnanna og
myndskreytt af nokkrum þekktustu
listamönnum Spánverja. Hver bók
er eitt ævintýri og áður eru út
komnar sex bækur í sama flokki.
Þorsteinn skáld frá Hamri þýddi.
27 blaðsíður.
Forlagið.
Verð: 385 kr. hver bók.
SÖGUR ÚR SVEITINNI
Heather Amery og Stephen
Cartwright
( þessari aðgengilegu barnabók
eru fjögur ævintýri. Grísinn sem
gat ekki losað sig - Óþekka kindin
- Hlaðan brennur og Traktorinn
sem týndist. Allt sögur úr sveitinni
sem alltaf heilla börnin. Bókin er
skreytt fjölda teikninga sem gera
hana læsilegri fyrir börnin.
64 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 880 kr.
RÁÐGÁTAN
Susan Cooper
Fyrsta bókin í margverðlaunuðum,
spennandi, bandarískum bóka-
flokki, sem á íslensku hefur hlotið
nafnið „ÓGN MYRKURSINS".
Þegar þrír krakkar í sumarleyfi
finna ævafornt fjársjóðskort, fer að
hitna í kolunum. Bók fyrir ungt fólk
frá tíu til tíræðs.
220 blaðsíður.
Líf og saga.
Verð: 1790 kr.
PÉTUR PAN OG VANDA
J. M. Barrie, þýtt hefur Vilborg
Dagbjartsdóttir
Hér er á ferðinni einstök bók. Allar
síðurnar eru hreint listaverk og
kalla á lesandann. Hann svífur
með söguhetjunum í gegnum him-
ingeiminn í leit að ævintýrum. Pét-
ur Pan og Vanda eru með þekkt-
ustu ævintýrum sem um getur og
hafa þó aldrei verið jafn vinsæl og
nú. Þýðingin er í höndum Vilborgar
Dagbjartsdóttur rithöfundar. En
hún er þekkt fyrir að þýða barna-
efni af alúð.
96 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 1198 kr.
SÖGUSNÆLDUR FYRIR BÖRN
Sögumaður: Heiðdís Norðfjörð.
Tónlist: Gunnar Gunnarsson
JÓLASÖGUR, sex gullfallegar
jólasögur: Hvers vegna hringdu
klukkurnar? Sonur hjarðmannsins.
Dóttir gestgjafans. Smalaflautan.
Hjá egypska ræningjanum. Jóla-
guðspjallið. SÖGUR FYRIR
SVEFNINN, ævintýri og kvöld-
bænir fyrir sjö daga vikunnar: Pét-
ur ánægði og Pétur önugi. Býflug-
an vitra. Sonur fiskimannsins. Eig-
ingjarni risinn. Óskabrunnurinn.
Mennirnir tólf í skóginum. Ævintýr-
ið um ópalinn. Nýjar snældur:
JÓLASVEINAPRAKKARAR og
SÖGUR FYRIR SVEFNINN nr. 2.
Hörpuútgáfan.
ÆVINTÝRIÐ UM HINA
UNDURSAMLEGU KARTÖFLU
Anders Sorensen
Ævintýrið hefst hjá Inkum í Suður-
Ameríku. Við höldum síðan til Evr-
ópu og alla leið til íslands. Hér er
einstaklega vel gerð bók sem
bæði skemmtir lesandanum og
fræðir. Vilborg Dagbjartsdóttir, rit-
höfundur hefur þýtt og staðfært
efni bókarinnar og auk þess skrif-
að sérstaklega um áhrif kartöfl-
unnar á mannlíf hér á landi í gegn-
um tíðina.
64 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 988 kr.
KATA LITLA OG
BRÚÐUVAGNINN
Jens Sigsgaard
Sagan af Kötu eftir danska barna-
bókahöfundinn Jens Sigsgaard
kemur nú út í 3. útgáfu hér á landi.
Höfundurinn er kunnur víða um
heim fyrir bók sína Palli var einn í
heiminum, sem komið hefur út í 37
þjóðlöndum og nýtur hvarvetna fá-
dæma vinsælda. Arne Ungermann
teiknaði litmyndir, eins og í bókina
um Palla. Bókin segir frá ævintýr-
um Kötu með Eiríki vini sínum, er
þau fóru að skoða bæinn og
gleymdu fallega brúðuvagninum.
24 blaðsíður.
Bókaútgáfan Björk.
Kilja: 180 kr.