Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Side 31

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Side 31
Ævisögur og endurminningar «*r» V' MANNLÍF I' AÐALVÍK OG FLEIRI MINNINGABROT Gunnar Friðriksson Gunnar man tímana tvenna. Hann er fæddur og uppalinn í Aðalvík, í harðneskjulegu umhverfi við ysta haf, þar sem lífsbaráttan var hörð og mannskæð, en ól á dugnaði, þrautseigju og samheldni. Gunnar lýsir þessu samfélagi á lifandi og trúverðugan hátt en síðan þeim harmsögulegu atburðum og þeirri þróun sem olli því að Aðalvíkingar urðu að hverfa á brott og ganga frá eigum sínum og öllu sem þeim var kært. 240 blaösíður. Örn og Örlygur. Verð: ÉG HEF LIFAÐ MÉR TIL GAMANS Björn á Löngumýri segir frá Gylfi Gröndal Björn Pálsson á Löngumýri metur enga eiginleika meira en gaman- semi og frelsi. Hann lætur engan kúga sig eða kúska, hvorki banka- stjóra, sýslumenn né ráðherra. Kímnin situr jafnan í fyrirrúmi og frásagnargleðin er ósvikin, hvort sem Björn segir frá bernsku sinni og búskap, málaferlum eða störf- um á alþingi. Saga hans er í senn tæpitungulaus, ögrandi og ekki síst gagnmerk heimild. 256 blaðsíður. Forlagið. Verð: 2780 kr. FRAM FYRIR SKJÖLDU Ævisaga Hermanns Jónassonar Indriði G. Þorsteinsson Hermann Jónasson var einn dáð- asti stjórnmálamaður sinnar tíðar, og virtur langt út fyrir raðir flokks- systkina sinna. í bók þessari segir Indriði G. Þorsteinsson frá æsku og uppvexti Hermanns og þroska- ferli. Greint er frá átökum og uppá- komum og stjórnmálaferillinn rak- inn allt fram á stríðsárin. Bókina prýðir fjöldi mynda. Reykholt. Verð: 3292 mmom II blndl BÆNDUR Á HVUNNDAGSFÖTUM 2. BINDI Helgi Bjarnason blaðamaður Á síðasta ári kom út fyrra bindi bókar með sama nafni. Hér er á ferðinni opinská viðtalsbók við bændur, sem segja frá fjölbreyttu lífshlaupi sínu. Bókin er fróðleiks- náma, prýdd miklum fjölda Ijós- mynda. Þeir sem segja frá eru: Einar E. Gíslason á Skörðugili í Skagafirði, Benedikt Hjaltason á Hrafnagili í Eyjafirði, Örn Einars- son í Silfurtúni í Hrunamanna- hreppi, Björn H. Karlsson á Smá- hömrum í Steingrímsfirði og Guð- mundur Lárusson í Stekkum í Flóa. 200 blaðsíður. Hörpuútgáfan. Þortell Jóhtmnessan ■ Bergsteitm Jónsson TRYGGVI GUNNARS SON LÍFSSTRÍÐIÐ Eiríkur Jónsson Lífsstríðið fjallar um æviferil Mar- grétar Róbertsdóttur frá Þriðja ríki Hitlers til Þorlákshafnar. Margrét upplifði ótrúlegar hörmungar á stríðsárunum og var m.a. fangi Rússa. Hún komst til íslands eftir stríð og gerðist vinnukona á sveitabæ í Fljótshlíðinni þar sem enn mættu henni miklar þrenging- ar. En að lokum tók líf hennar á sig annan blæ, hamingja kom í stað hörmunga. Fróði hf. Verð: 2180 LIFÐU Mari Lornér Mari Lornér var 37 ára og fjögurra barna móðir þegar hún veiktist af beinkrabba. í veikindunum varð dagbókin hennar trúnaðarvinur. Meðferðin gekk vel, en 3 árum síð- ar tók krabbameinið sig upp og enn hélt Mari dagbók. Dagbókar- brotunum hefur nú verið safnað í bókina Lifðu! Einlæg og opinská frásögn, sem lætur engan ósnort- inn. 76 blaðsíður. Fíladelfía - Forlag. Verð: 650 kr. TRYGGVI GUNNARSSON IV. Bergsteinn Jónsson Fjórða bindi ritverksins um hinn mikla athafnamann Tryggva Gunnarsson, bankastjóra og al- þingismann, sem kom óvenju víða við í íslensku þjóðlífi, bæði at- vinnu- og menningarlífi um sina daga eða meira en hálfa öld (1835-1917). Hér er m.a. sagt frá starfsferli hans sem bankastjóra Landsbankans og forystu um verklegar framkvæmdir, s.s. smíði Ölfusárbrúar. Lokabindi, tekið saman að tilhlutan Landsbanka og Seðlabanka. 560 blaðsíður. Bókaútgáfa Menningarsjóðs. Verð: 3900 kr. TRYGGVI GUNNARSSON - RITSAFNIÐ TRYGGVI GUNNARSSON, ÆVI OG STÖRF ATHAFNAMANNS Þorkell Jóhannesson og Bergsteinn Jónsson Hér birtist ævisaga Tryggva Gunn- arssonar í heild í 4 bindum í vand- aðri gjafaöskju. Fyrsta og annað bindi eru endurprentuð samhliða útgáfu fjórða bindis. Glæsileg eign í mjög takmörkuðu upplagi. Ævi- ferill Tryggva er sem sjónarhóll, þaðan sem gefur að líta óvenju vítt og fjölbreytt svið íslensks þjóðfé- lags og athafnalífs, stjórnmála og menningar. 2297 blaðsíður. Bókaútgáfa Menningarsjóðs. Verð: 13500 kr. Ritsafnið.

x

Íslensk bókatíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.