Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Qupperneq 34
34 Ævisögur og endurminningar
ÞAÐ HÁLFA VÆRI NÓG
- lífssaga Þórarins
Tyrfingssonar læknis
Guðrún Guðlaugsdóttir skráði
Þórarinn Tyrfingsson var á árum
áður í hópi þekktustu handknatt-
leiksmanna en hin síðari ár er Þór-
arinn einkum kunnur fyrir störf sín
á vegum SÁÁ. Hann hefur rétt
mörgum illa stöddum drykkju-
manni hjáiparhönd og veit af eigin
raun hvert böl ofdrykkjan er þeim
sem í klóm hennar lendir. Þórarinn
kom til liðs við SÁÁ skömmu eftir
að samtökin hófu rekstur sinnar
fyrstu sjúkrastöðvar og hefur verið
í fylkingarbrjósti þeirra síðan.
184 blaðsíður.
Örn og Örlygur.
FRIÐARHÖFÐINGI
Dalai Lama
Dalai Lama var aðeins 16 ára og
nýkominn til ríkis, þegar innrás
Kínverja í land hans Tíbet hófst.
Þá reyndi strax á hugrekki og
stjórnkænsku hins unga manns.
Lengi reyndi hann að lifa í friði við
hernámsliðið og leysa málin með
sættum, þangað til kúgunin varð
óbærileg. Þá varð hann að hverfa
úr landi og stofna útlagastjórn í
Indlandi. Hann er andvígur öllu of-
beldi. í kenningu og I verki er hann
sannkallaður Friðarhöfðingi.
176 blaðsíður.
Fjölvi/Vasa.
Verð: 1980 kr.
HANNIBAL VALDIMARSSON
og samtíö hans
Þór Indriðason
Afar vönduð bók, sem stjórnmála-
fræðingurinn Þór Indriðason hefur
ritað um Hannibal Valdimarsson,
sem skilið hefur eftir sig óútmáan-
leg spor í íslenskri sögu. Stór-
skemmtileg og fróðleg bók, um
mann sem aldrei var logn í kring-
um.
Líf og saga.
Verð: 3490 kr.
MINNINGAR ÚR MÝRDAL
Eyjólfur Guðmundsson bóndi
og rithöfundur á Hvoli
Þórður Tómasson safnvörður í
Skógum bjó til prentunar. Eyjólfur
lést 1954. Hann varð þjóðkunnur
er bók hans Afi og amma kom út
1941. Á eftir fylgdu minningabæk-
urnar Pabbi og mamma, Vöku-
nætur og eigin ævisaga, Lengi
man til lítilla stunda. Þessi nýja
bók tekur upp þráðinn þar sem
henni sleppir. Hér er sagt frá eftir-
minnilegu fólki og margvíslegum
örlögum. Þetta er hluti af þjóðar-
sögu, hugþekk og eftirminnileg
heimild.
166 blaðsíður.
Örn og Örlygur.
p TRYGGVI..
(jUNNARSSON
ÆVI0G STÖRF ATHAFNAMANNS
NÚ, UM LEIÐ og 4. og síðasta bindi ævisögu
Tryggva Gunnarssonar, ritað af Bergsteini
Jónssyni, kemur út hjá Bókaútgáfu Menningar-
sjóðs, að tilhlutan Landsbanka íslands og Seðlabanka
íslands, kemur jafnframt ritsafnið út í heild í eintaklega
vandaðri gjafaöskju.
Sagan er ekki einvörðungu litrík ævisaga þessa merka
manns, hún er jafnframt sjónarhóll, þaðan sem gefur að líta
óvenjulega vítt og fjölbreytt svið íslensks þjóðfélags,
athafnalífs, stjórnmála og menningar um meira en hálfrar
aldar skeið. í 4. og síðasta bindi ritsafnsins er íjöldi mynda
af samtímamönnum Tryggva sem aldrei hafa birst áður.
Af störfum Tryggva um dagana er augljóst að þar fór mikill
athafnamaður sem lét sig flest skipta er þjóðinni gat orðið
til framdráttar. Má þar t.a.m. nefna aðild hans að Hinu
íslenska þjóðvinafélagi, Fiskifélaginu ogöðrum samtökum
útvegsmanna, Dýraverndunarfélaginu, Skógræktarfélag-
inu, Alþýðubókasafninu, Slippfélaginu í Reykjavík,
íshúsfélaginu og síðast en ekki síst Gránufélaginu.
AÐEINS 350 GJAFAÖSKJUR
EN 650 EINTÖK AF 4. BINDI.
Vert er að taka fram að einstök bindi ritsafnsins (1.-3.) eru
ófáanleg. I tilefni af útkomu heildarsafnsins voru
1. og 2. bindi endurprentuð í aðeins 350 eintökum hvort.
GJAFAASKJA KR. 13.500.- 4. BINDI KR. 3.900.-