Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Síða 44
Fræðibækur
ÁRAN
- orkublik mannsins
Birgit Stephensen
Esther Vagnsdóttir þýddi en
Úlfur Ragnarsson læknir veitti
fræðilega ráðgjöf
Sérhverri manneskju fylgir ára,
orkublik. I blikinu birtast allir okkar
persónulegu eðlisþættir og innri
eiginleikar; orkublikið birtir okkar
innri mann. Bókin sýnir hvernig
hægt er að læra að skynja orku-
blikið og um leið þroska eigið inn-
sæi og treysta á leiðsögn þess. í
bókinni eru litmyndir af orkublikinu
og túlkanir á því.
169 blaðsíður.
Örn og Örlygur
PERLURí NÁTTÚRUÍSLANDS
Guðmundur P. Ólafsson
Aldrei hefur íslensku landslagi ver-
ið lýst á prenti eins og gert er í
þessari bók. í fyrri hluta hennar er
yfirlit um jarðsöguna og kenningar
um hvernig Island reis úr sæ,
hvernig landslag verður til, mótast
og eyðist. Síðari og stærri hluti
verksins lýsir um 70 stöðum á
landinu, frá fjöru til fjalla, bæði í
tengslum við jarðfræði og náttúru-
fræði og íslandssögu. Bókin er
prýdd glæsilegum Ijósmyndum,
skýringarmyndum og kortum.
410 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 11880 kr.
„Dýrmæt blesGun"
Normon Vlncent Peale
EMANUEL SWEDENBORG OG
EILÍFÐARTRÚIN MIN
Hellen Keller
Sveinn Ólafsson þýddi
Hellen Keller var blind og heyrnar-
laus en lifði samt í heimi kærleika,
birtu og lita. Hvar fann hún styrk til
að brjótast út úr sinni myrku og
þöglu veröld og upgötva Ijósið?
Hver var hinn innri bjargvættur trú-
arinnar, sem hjálpaði henni til að
yfirstíga takmarkanir síns efnislega
líkama? Hellen Keller lýsir því and-
lega ævintýri sem færði henni þá
eilífðartrú þar sem hún greindi
sannindi tilverunnar.
160 blaðsíður.
Örn og Örlygur.
Verð: 1790 kr.
VATNS ER ÞÖRF
Sigurjón Rist
[ bókinni er fjallað um vatnafar ís-
lands, þróunarsögu vatnamæl-
inga, ár og vötn í einstökum lands-
hlutum, vatnsnytjar o.fl. í formála
segir Jakob Björnsson orkumála-
stjóri, að bókin „eigi erindi við alla,
lærða sem leika, sérfræðinga sem
alþýðu manna því engum er vatnið
óviðkomandi.“ Þetta er kjörið upp-
flettirit um ár og vötn á fslandi,
prýtt fjölda korta og litmynda.
248 blaðsíður.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
4200 kr.
HRAUNHELLAR Á ÍSLANDI
Björn Hróarsson
Hraunhellar eru náttúrugersemar
sem fáir þekkja, þótt þá sé að
finna víða um landið. Hér er sagt
frá myndun, varðveislu, sögu og
staðsetningu íslenskra hraunhella.
Höfundurinn byggir á rituðum
heimildum og eigin rannsóknum,
sem hann hefur stundað um ára-
bil. Bókin er prýdd fjölda bráðfal-
legra Ijósmynda og kort fylgja af
helstu hellum.
170 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 3880 kr.
Will Durant
SIDASKIPTIN
SIÐASKIPTIN II
Will Durant
Björn Jónsson skólastjóri
þýddi
Nýtt bindi úr hinu mikla ritverki Will
Durant, sem hann kallar Sögu sið-
menningar, og út kom í ellefu bind-
um á árunum 1935-75. Þetta bindi
fjallar um tímabilið 1300-1517, frá
John Wyclif til Marteins Lúthers.
Er það síðari hluti, en fyrri hluti
kom út á sl. ári. Einnig hafa komið
út í ísl. þýðingu Rómaveldi, Grikk-
land hið forna og í Ijósi sögunnar.
215 blaðsíður.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Verð: 2850 kr.
LJÓSHÆRÐA VILLIDÝRIÐ
Arthúr Björgvin Bollason
í bókinni er fjallað um þær hug-
myndir sem þýskir hugsuðir á 19.
öld höfðu um íslendinga til forna
og hvernig nasistar færðu sér þær
í nyt. í þriðja ríkinu voru Þjóðverjar
hvattir til að taka íslenska forn-
kappa sér til fyrirmyndar og forn-
norrænum menningararfi var gert
hátt undir höfði. Um leið reyndu
nasistar að fá til liðs við sig ís-
lenska rithöfunda og listamenn.
Frásögn höfundar er lífleg og fróð-
leg í senn.
160 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 2580 kr.
STEFÁN FRÁ HVÍTADAL OG
NOREGUR
Ivar Orgland
Steindór Steindórsson þýddi
í þessari bók er rakið ítarlega,
hversu gagnger áhrif Noregsdvöl
Stefáns frá Hvítadal hafði á Ijóð
hans, einkum í fyrstu bókinni,
Söngvum förumannsins. Hún
markaði tímamót í íslenskri
kvæðagerð og vakti almenna
hrifningu á listrænu skáldi, sem
skóp merkilega nýjung í máli og
brag. Lýsir Ivar Orgland vinnu-
brögðum Stefáns og sérstöðu.
360 blaðsíður.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Verð: 2850 kr.