Íslensk bókatíðindi - 01.12.1990, Síða 51
Ymsar bækur
S7
HUNDALlF
Guðrún Petersen
Loksins bók á íslensku, fyrir
hundaeigendur og hundavini, um
allt sem vita þarf um hlýðniþjálfun,
þjálfun veiðihunda, sjúkdóma og
meðferð þeirra o.fl. o.fl. Yfir 170
myndir og teikningar. Guðrún Pet-
ersen er menntaður hundaþjálfari
og þekkt fyrir störf sín að hunda-
málefnum.
210 blaðsíður.
Líf og saga.
REYNSLA UNDIR LEIÐSÖGN
Síló (Mario Luis Rodriguez
Cobos)
1989 kom út bókin „Að gera jörð-
ina mennska" eftir Silo. Sú bók
hefur notið mikilla vinsælda. í
þessari nýjustu bók Siló er gerð ný
bókmenntaleg tilraun, og það ger-
ist vissulega ekki á hverjum degi.
134 blaðsíður.
Hildur.
Verð: 1358 kr.
NÁLASTUNGA - EITTHVAÐ
FYRIR ÞIG?
J. R. Worsley
Hér greinir prófessor J. R. Worsley
frá yfir 30 ára reynslu sinni, sem
meðhöndlari og kennari, og svarar
algengustu spurningum varðandi
nálastungumeðhöndlun. Eftir því
sem skilningur og áhugi almenn-
ings á nálastungumeðferðinni hef-
ur aukist, fannst honum kominn
tími til að koma á framfæri upplýs-
ingum um hugmyndafræðina, sem
liggur að baki og hvernig með-
höndlun fer fram.
136 blaðsíður.
Dögun/Prentver.
Kilja: 1290 kr.
EÐALSTEINAR OPNA HUGANN
Brett Bravo
Brett Bravo er andlegur leiðbein-
andi, kennari, heilari og einnig
hannar hún skartgripi, sem notaðir
eru til heilunar. Hægt er að leysa
ótrúlegustu vandamál í mannleg-
um samskiptum og öðlast betri
heilsu með hugleiðslu á eðal-
steina. í þessari bók eru einfaldar
leiðbeiningar til að ná betri tengsl-
um við meðfædda innri hæfileika
og orkuflæði og ná með því and-
legri og líkamlegri vellíðan.
120 blaðsíður.
Dögun/Prentver.
Kilja: 1290 kr.
crin
Bög gamanmál 8
i— . —j
GVÐJÓN INGI EIRlKSSON SAENAÐl
GRÍN OG GAMANMAL
Guðjón Ingi Eiríksson safnaði
Bókin flytur léttmeti fyrir alla, jafnt
glaðlynda sem þunglynda. í bók-
inni eru fjölmargir brandarar og
spaugilegar setningar. Brandar-
arnir henta öllum aldurshópum,
enda spyr fyndni ekki að aldri.
136 blaðsíður
Örn og Örlygur
Verð: 990 kr.
ISLAND
ERICH SHECEUtALTKR • HARALD MERTES
IHERDERI
ÍSLAND ER NAFN ÞITT
Spiegelhalter og Sig. A.
Magnússon
Landkynningar- og Ijósmyndabók
um ísland. Þetta eru í rauninni fjór-
ar bækur sitt á hverju tungumáli.
Óvenjulegt verk sem orðið hefur til
í samstarfi Fjölva og Herder-út-
gáfu í Þýskalandi. Meistaraljós-
myndarinn Erich Spiegelhalter
birtir hundrað litljósmyndir af land-
inu. Sjálfstæðar bækur á hverju
tungumáli m.a. Sig. A. Magnús-
son, Marshall Brement, Pamela
Sanders, Gerard Lemarquis.
112 blaðsíður.
Fjölvi/Vasa.
Verð: 2280 kr.
j, !■' ■ ; ý: ■ ■ / . ''[ fr / .
7 fi' "'L'M. „■■''-■■■■ ■;[; ..." fl> . "
: k '.I; • •.■•*•>•■. 1 /,• ••', '• ( \
\( '' (i' ' -
I ' ;V ■ ' V 'í
il ■■■^'- ■i ■
A '1
'Y . k ^ , ■ ijy
BÓKIN UM VEGINN
Lao Tse
Þýðing: Jakob J. Smári og
Yngvi Jóhannessynir.
Fáar bækur hafa verið gefnar út
oftar og víðar í heiminum en þessi
bók. Þetta er 3. útgáfa hennar á ís-
lensku. Formála 2. útgáfu, sem
birtur er hér óbreyttur, ritaði Hall-
dór Laxness. Hann segir m.a.:
„Þegar bókin kom út á íslensku
fannst mér ég hitta fyrir gamlan vin
sem hefði einlægt verið hjá mér í
andanum síðan við sáumst sein-
ast.“ Vart mun hægt að velja betri
vinagjöf.
110 blaðsíður
Hörpuútgáfan
Verð: 800 kr.
GULLKORN DAGSINS - FLEYG
ORÐ OG ERINDI
Ólafur Haukur Árnason valdi
efnið. Bjarni Jónsson
myndskreytti.
Þessi bók hefur að geyma fleyg
orð og erindi, eitt fyrir hvern dag
ársins. Höfundar eru íslenskir
menn og erlendir, heimsfrægir
garpar og aðrir sem flestum eru
ókunnir. En ræða þeirra snýst í
megindráttum um hið sama:
Manninn, hinn skyni gædda mann,
í flókinni veröld þar sem flest virð-
ist á hverfanda hveli og erfitt reyn-
ist að greina hismi frá kjarna.
159 blaðsíður
Hörpuútgáfan
Verð: 1980 kr.