Bókasafnið


Bókasafnið - 01.02.1999, Síða 58

Bókasafnið - 01.02.1999, Síða 58
uð til efnisgreiningar þess ritakosts sem skráður er í Gegni og eru efnisorðin sett í svið 659, efnisorð á íslensku. Við afturvirka skráningu ritakostsins hefur verið mögulegt að taka einstök efnissvið sérstaklega fyrir til efnislyklunar, til j dæmis grafík. Hafa á þann hátt orðið til á tilteknum sviðum innan myndlistar og skyldra greina nákvæmar efnisorðaskrár á íslensku sem byggjast á sátt fræðasviðsins. Stefnur og tímabil listasögunnar, frá fornöld til samtímans, er önnur slik sérskrá yfir heiti á íslensku sem glímt er við um þessar mundir. Vinnan hefur farið fram með þeim hætti að efnisorðum er safnað í stafrófs- röð, annars vegar á sviði myndlista og hins vegar á sviði nytjalistar og hönn- unar, en þau sem sett hafa verið í Gegni eru sérstaklega auðkennd. Nafnmynda- J skrám yfir heiti íslenskra listamanna, innlendra og erlendra listastofnana og sýninga er síðan haldið sér. Vinnan við þetta þróunarverkefni hefur alltaf verið unnin hljóðlátlega, jafnhliða öðrum | störfum á bóka- og myndasafni MHI, og hefur fram að þessu ekki haft sérstakan forgang fram yfir önnur verkefni á safn- inu, né hlotið stuðning yfirvalda menn- ingar- og menntamála. Samkvæmt stefnu menntamálaráðuneytisins í upplýsinga- málum 1996-1999 ber þó að efla rannsóknir og þróun í notkun upplýsingatækni í skólum og í þeim tilgangi er mikilvægt að styðja og styrkja slíkar rannsóknir.19 N eðanmálsgreinar 1 Enska: art documentation standards. 2 í krafti upplýsinga (1996), bls. 17-19. 3 Ibid. 4 Til dæmis nefnd um heimildaskráningu (CIDOC) á vegum alþjóðlega safnaráðsins ICOM (International Council of Museums), orðanefnd TAU (Thesaurus Artis Universalis) innan alþjóðlega listfræðingaráðsins CIHA (International Committee for the History of Art), listrann- sóknarverkefnið AHIP (Art History Information Program) við Getty rannsóknarstofnunina, en úr því var meðal annars myndaður starfshópur um listupplýsingar AITF (Art Information Task Force) í samvinnu við Félag listaháskóla CAA (College Art Association). 5 í könnun frá 1996 á vegum Museum Documentation Association um notkun stýrðs orðaforða í breskum söfnum (Survey of terminology in British museums) kom í ljós að AAT var sú skrá sem oftast var nefnd og þótti nauðsynleg. 6 Birt í Introduction, Visual Resources, árg. 11, (3-4), 1996, bls. 241-250. 7 http://www.gii.getty.edu/vocabulary 8 Þekkt dæmi um slíka efnisorðaskrár er Library of Congress Subject Headings. 9 Sbr. könnun sem Museum Documentation Association (MDA) gerði árið 1996, Survey of terminology in (UK) Museums, http://www.open. gov.uk/mdocassn/survey.htm 10 Meðal annars Bildarchiv Foto Marburg, Istituto Centrale per il Catalogo e la Documentazione, (ICCD), The Royal Institute of British Lokaorð Opinberri stefnumótun og umræðu um stjórn listupplýsinga á Islandi er áfátt. Líkt og annars staðar í hinu alþjóðlega list- upplýsingasamfélagi er vaxandi þörf hér á landi, bæði fræði- manna og almennings, fyrir bætt aðgengi að slíkum upplýs- ingum. Ljóst er að við heimilda- skráningu þarf að fylgja samræmdum aðferðum sem byggjast á alþjóðlega viðurkenndum stöðlum og jafnframt taka mið af þeim þróunarverkefnum sem hafa fordæmisgildi. Samræmt skráningarsnið og stýrður orðaforði á íslensku eru tvær mikilvægar for- sendur þess að auðvelda nettengt aðgengi. I fyrsta lagi er nauðsynlegt að sérfræðingar sameinist um sam- ræmt snið til skráningar, óháð þeim skráningarkerfum sem valin hafa verið. 1 öðru lagi er brýnt að efldur verði stuðningur við þau verkefni sem miða að því að gera stýrðan orðaforða á íslensku yfir menningar- arfleifðina. Þróunarverkefni það sem er í gangi við bókasafn Myndlista- og handíðaskóla íslands um gerð stýrðs orðaforða í myndlist og skyldum greinum byggist á viðurkenndum samræmdum aðferðum. Þetta verkefni má skoða sem mikilvægan hlekk til að opna leið að menningararfinum. Architects (RIBA), Universidad Autonoma de Madrid og Université de Montreal. 11 Sjá Guidelines for forming language equivalents: a model based on Art and Architecture Tbesaurus (http://www.gii.getty.edu/guidelines). 12 Sbr. einnig formála að ÍST 90, 1991 • 13 í krafti upplýsinga, bls. 19. 14 Sbr. ARLIS/UK and Ireland (1993), A Library and information plan for the visua! arts, (British Library R&D Report 6111). 15 Innan RLG starfar sérstök nefnd (Art and Architecture Group) að þróun upplýsingamála á sviði myndlistar og byggingarlistar, meðal annars í þeim tilgangi að þróa verklagsreglur og staðla og taka upp nýjar að- ferðir og tækni (Martinez, 1998). 16 http://www.gii.getty.edu/guidelines 17 Til dæmis við íslensku þýðinguna á Dewey-flokkunarkerfinu, íslensku alfræðiorðabókina (1990), Hugtök og heiti í bókmenntafræði, Sögu listarinnar (1997) o.fl. 18 Til dæmis ýmsar samræmdar nafnmyndaskrár sem gerðar hafa verið í bókasafni MHÍ, ýmislegt fjölritað kennsíuefni hinna ýmsu fagdeilda við MHÍ, þ.m.t. listfræði, og ópr. efnisorðaskrá Arndísar Árnadóttur og Guðrúnar Hannesdóttur yfir íslenska sjónlistasögu frá upphafi sem byggist á rithjarli fræðasviðsins, þ.e. bókum, bókaköflum og tímarits- greinum útg. á 19. öld til 1990. 19 í krafti upplýsinga. H. Matisse: Útsýni úr glttgga, 1912-1913. 56 Bókasafnið 23. Arg. 1999
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.