Bókatíðindi - 01.12.2012, Page 3
Efnisyfirlit
1
Kæru bókakaupendur
V ið sem gefum út bækur á Íslandi eigum ykkur allt
að þakka. Þið hafið gert íslenska bókamarkaðinn
að einstöku fyrirbæri. Ekkert sambærilegt málsvæði í
heiminum hefur náð að skapa jafn öflugan bókamarkað
og sú staðreynd er einungis komin til af því að þið kaupið
bækur. Lifandi áhugi ykkar á að lesa efni eftir höfunda
sem skrifa á íslensku er grundvöllurinn fyrir því að bækur
koma út. Á undanförnum árum hafa mörg hundruð
íslenskar bækur verið gefnar út í erlendum þýðingum. Til
þess að svo megi verða þarf öfluga íslenska bókmenn-
ingu sem vekur áhuga hjá skapandi fólki á skriftum.
Stuðningur ríkisvaldsins við höfunda, jafnt fagurbók-
menntahöfunda sem höfunda fræðibóka, er mikilvægur,
en þáttur bókamarkaðarins ríður baggamuninn. Ekki
aðeins vegna þess að höfundar fá tekjur af sölu bóka
sinna. Bókamarkaðurinn er vettvangurinn þar sem hug-
myndir eru settar fram og sögur sagðar. Höfundar láta
reyna á gildi hugmynda sinna með því að miðla þeim
í bók og skapa umræður. Sá sem gefur út bók hættir til
þess kröftum sínum og fjármunum í von um að hinir
bókelsku Íslendingar lesi hana og ræði. Sá sem skrifar
bók sér fyrir sér að hún nái til almennings með því að
vera gjaldgeng vara á markaði.
Kæru bókakaupendur. Bókaútgefendur vinna árið um
kring að því að búa bækurnar sem best í ykkar hendur.
Þeir starfa með höfundum við að þróa hugmyndir þeirra.
Þeir skoða málfar og stafsetningu, þeir velja leturgerðir
og útlit, fjármagna framleiðslu og dreifingu og reyna
að vekja athygli kaupenda á hugmyndum og sögum.
Það skiptir ekki höfuðmáli í hvaða formi bækurnar eru.
Vinnan við að koma þeim á markað er alltaf sú sama.
Hún felst í því að fá til sín hæft fólk til að ritstýra bókum
og markaðssetja þær. Búa til vettvang sem er eftirsóknar-
verður fyrir þá sem miðla viðhorfum og frásögnum á
móðurmálinu. Þótt bækur séu ýmist innbundnar, í kilju,
í hljóðformi eða rafrænar er formið á þeim ekki það
sem skiptir máli. Það sem mestu máli skiptir er að þær
komi út á vettvangi sem er lifandi og virkur. Við ætlum
okkur áfram að fjárfesta árlega fyrir milljarða í þessum
vettvangi – íslenskum bókamarkaði. Og við treystum
á áhuga ykkar, ástríðu og þekkingarþorsta. Eins og við
höfum gert í 120 ár.
Kristján B. Jónasson
Formaður Félags íslenskra bókaútgefenda
BÓK ATÍÐ INDI 2012
Útgef andi: Félag íslenskra bóka út gef enda
Bar óns stíg 5
101 Reykja vík
Sími: 511 8020
Netf.: baek ur@simnet.is
Vef ur: www.bokaut gafa.is
Hönn un kápu: Ámundi Sigurðsson
Ábm.: Benedikt Kristjánsson
Upp lag: 125.000
Umbrot, prent un Oddi,
og bók band: umhverfisvottuð prentsmiðja 141 776
UMHVERFISMERKI
PRENTGRIPUR
Dreifing: Íslandspóstur hf.
ISSN 1028-6748
Leið bein andi verð
„Leiðb.verð“ í Bók atíð ind um 2012 er áætl að
útsölu verð í smá sölu með virð is auka skatti.
Verð eru á ábyrgð hvers útgefanda.
Barna- og unglingabækur
Íslenskar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 2
Þýddar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 20
Hljóðbækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 50
Skáld verk
Íslensk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 52
Þýdd . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 72
Hljóðbækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 90
Ljóð og leikrit . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 96
Endurútgáfur
Íslenskar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 102
Þýddar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 110
Listir og ljósmyndir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 114
Héraðslýsingar, saga og ættfræði . . . . . . . . . . . . . . . 118
Ævi sög ur og end ur minn ing ar . . . . . . . . . . . . . . . . . . 124
Matur og drykkur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 134
Fræði og bækur almenns efnis . . . . . . . . . . . . . . . . . 142
Útivist, íþróttir og tómstundir . . . . . . . . . . . . . . . . . 186
Rafbækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 194
Höf unda skrá. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 207
Útgef end ur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 215
Bók sal ar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 218
Titl askrá . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 220
Þetta tákn merkir hljóðbók.
Tímalengd er uppgefin í mínútum.
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 2