Bókatíðindi - 01.12.2012, Page 55
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 2 Skáldverk « ÍSLENSK »
53
Bjarna-Dísa
Kristín Steinsdóttir
Bjarna-Dísa fæddist á 18. öld,
öld hjátrúar og hindurvitna.
Afdrif hennar urðu efni í
grimmilega þjóðsögu. Hér
fær Dísa sjálf orðið. Daginn
sem hún hélt upp á heiði
ásamt Bjarna bróður sínum
var vonskuveður en skyldan
kallaði. Á heiðinni biðu þeirra
átök við öfl náttúru og myrk-
urs. Áhrifarík saga konu úr
fortíðinni sem ekki hefur átt
sér málsvara fyrr.
158 bls.
FORLAGIÐ
Vaka-Helgafell
ISBN 978-9979-2-2199-9
Blekking
Sigurjón Pálsson
Blekking er sjálfstæð saga en
með persónum og ívafi úr
bókinni Klækjum eftir Sigur-
jón, sem út kom 2011 og
hlaut BLÓÐDROPANN 2012,
sem besta íslenska glæpa-
sagan.
Mörður er á ferð um
Norðausturland, æskuslóðir
móður sinnar og lítur inn
hjá Magnúsi, öldnum bróður
hennar á Húsavík, sem hann
hefur hvorki séð né heyrt frá
í áratugi.
Merði er vel fagnað af
frænda sínum og þegar þeir
kveðjast grefur Magnús upp
gamalt bréf til hans frá stúlku
sem Mörður hafði kynnst
síðast er hann var á Húsavík,
aldarþriðjungi áður.
Í bréfinu, sem skrifað er
skömmu eftir kynni þeirra,
má finna Biblíutilvitnun sem
tengist altaristöflu Húsavíkur-
kirkju og skilja má sem hróp
Rúnu um hjálp, en á töflunni
reisir Jesú Lasarus upp frá
dauðum.
Forvitni Marðar er vakin.
Hann fer að kanna afdrif
Rúnu og kemst fljótlega að
því að skömmu eftir að hún
skrifaði bréfið var hún myrt á
hrottafenginn hátt.
Við nánari eftirgrennslan
um afdrif Rúnu rekst hann á
hindranir.
Atburðarásin teygir sig til
Danmerkur þar sem sann-
leikurinn virðist leynast.
Draumsýn ehf.
ISBN 978-9935-444-16-5
Leiðb.verð: 3.990 kr. Kilja
Uppheimar | Vesturgötu 45 | 300 Akranes | 511 2450
uppheimar@uppheimar.is | www.uppheimar.is
TVÆR FRÁBÆRAR BÆKUR FRÁ ÞESSUM
EINSTAKA RITHÖFUNDI
GYRÐIR ELÍASSON
GYRÐIR ELÍASSON er afkastamikið skáld og rit höfundur. Á árinu
sendi hann frá sér tvær frumsamdar bækur, ljóð og sögu.
Hér vex enginn sítrónuviður er nýjasta ljóðabók Gyrðis og hefur
hlotið fádæma lof gagn rýnenda, sem og lesenda.
Suðurglugginn er skáldsaga um rithöfund sem dvelur í sumarhúsi
vinar síns í grennd við lítið þorp og glímir við að skrifa skáldsögu
– verk sem stöðugt neitar að taka á sig þá mynd sem höfundur inn
leitast við að skapa. Hér tekur Gyrðir upp þráðinn þar sem frá var
horfið í Sandár bókinni og spinnur nýja og áleitna sögu um hlut skipti
lista mannsins.