Bókatíðindi - 01.12.2012, Page 66
64
Skáldverk « ÍSLENSK » B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 2
Morð og missætti
Guðbjörg Tómasdóttir
Morð og missætti er skáldsaga
sem gerist í Reykjavík.
Aðalpersóna sögunnar
lendir í slysi og neyðist til að
rifja upp liðin ár. – Þar kennir
margra grasa.
288 bls.
Guðbjörg Tómasdóttir
ISBN 978-9979-9541-3-2 Kilja
Morðið á Bessastöðum
Stella Blómkvist
Harðsoðni lögfræðingurinn
Stella er í hringiðu hrunsins,
sem er þó aðeins baksvið
atburðanna. Nektardansmær
hverfur og enginn vill leita
hennar. Á Hrauninu situr
erlendur dópsmyglari sem
vill fá Stellu sem lögfræðing.
Gamall maður deyr eftir að
hafa játað á sig glæp – og
eftir forsetaveislu á Bessa-
stöðum finnst blóðugt lík við
altarið í kirkjunni.
287 bls.
FORLAGIÐ
Mál og menning
ISBN 978-9979-3-3257-2 Kilja
Nakti vonbiðillinn
Bjarni Bjarnason
Bjarni hefur frá unga aldri
haldið draumadagbók. Í
Nakta vonbiðlinum er að
finna sextíu og fjóra drauma
úr safninu.
Draumadagbók er nýstár-
legt form í íslensku samhengi
en á sér hliðstæður í verkum
erlendra höfunda. Draumun-
um er raðað í tímaröð og höf-
undurinn leitast við að vera
þeim trúr, án þess að bæta
nokkru við eða leggja út af
þeim. Textanum er þannig
ætlað að veita innsýn í það
flæði undirvitundarinnar sem
listamenn hafa löngum nýtt
sér sem hráefni við sköpun
sína.
96 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9935-432-71-1 Kilja
Opinberun
Hugleikur Dagsson
Árið 1988 sendir Ronald
Reagan Biblíuna útí geim.
Aldarfjórðungi síðar lendir
gripurinn í höndum háþró-
aðra geimvera. Hvernig munu
slíkar verur túlka orð Guðs?
Opinberun er epísk og blóðug
frásögn Hugleiks Dagssonar
á því sem gerist þegar trúar-
brögð mæta vísindum.
64 bls.
Ókeibæ – Forlagið
ISBN 978-9935-439-04-8
Óbundin
Orrustan um Fold
Davíð Þór Jónsson
Á tunglinu Fold, sem snýst
um gríðarstóran gasrisa í
fjarlægu sólkerfi, hefur lítil
nýlenda manna skotið rótum.
Lífsbaráttan er hörð í glímu
við óblíð náttúruöfl. Þegar
undarlegar verur, líkastar
risavöxnum kóngulóm, taka
að herja á íbúana reynir þó
fyrst á styrk þjóðarinnar. Eða
eru hinir raunverulegu óvinir
kannski inngróið misrétti í
þjóðskipulaginu, huglausir
og værukærir leiðtogar og
spillingin sem gegnsýrir efstu
lög samfélagsins?
Orrustan um Fold eftir
Davíð Þór Jónsson er frum-
legsta íslenska vísindaskáld-
sagan sem komið hefur út.
Hún er hlaðin spennu og
orðkynngi, enda mun hún
vekja mikla eftirtekt.
250 bls.
Tindur
ISBN 9789979653813
Leiðb.verð: 4.990 kr.
Ósjálfrátt
Auður Jónsdóttir
Saga Eyju og fólksins í kring-
um hana, saga um ástina sem
getur verið svo hræðilega
erfið, saga um það að skrifa,
hvað þarf til þess að skrifa
af einlægni og lifa það af,
saga um allar sögurnar sem
lífið gefur okkur og sem við
megum ekki láta gleymast.
381 bls.
FORLAGIÐ
Mál og menning
ISBN 978-9979-3-3328-9