Bókatíðindi - 01.12.2012, Page 106
104
Endurútgáfur « ÍSLENSK AR » B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 2
Brakið
Yrsa Sigurðardóttir
Mannlaus snekkja siglir inn í
Reykjavíkurhöfn. Sjö manns
er saknað og Þóra Guð-
mundsdóttir lögmaður rann-
sakar hvaða óhugnanlegu at-
burðir áttu sér stað um borð.
Brakið var mest selda bókin
á Íslandi 2011 og hlaut auk
þess Gaddakylfuna, verðlaun
Glæpafélags Vestfjarða.
428 bls.
Veröld
ISBN 978-9935-440-14-3 Kilja
Dauðinn í Dumbshafi
Íshafsskipalestirnar frá
Hvalfirði og sjóhernaður í
Norður-Íshafi 1940-1943
Magnús Þór Hafsteinsson
Nú er þessi einstaka bók
fáanleg í kilju. Saga mikilla
mannrauna og hetjudáða.
„Þetta er mögnuð saga og
lesturinn tekur á mann,“ sagði
Kolbrún Bergþórsdóttir í Kilj-
unni og vafalítið eru margir
henni sammála.
520 bls.
Bókaútgáfan Hólar
ISBN 978-9935-435-10-1
Leiðb.verð: 3.980 kr. Kilja
Einvígið
Arnaldur Indriðason
Sumarið 1972 er Reykjavík
í uppnámi, heimsmeistara-
einvígið í skák er að hefjast
og bærinn fullur af útlend-
ingum. Meðan hæst stendur
fer saklaus unglingur í bíó og
verður fyrir fólskulegri árás.
Grípandi frásögn af hörmu-
legri mannfórn.
– „Glæpasögur
gerast ekki betri.“ SG/Morgun-
blaðið
317 bls.
FORLAGIÐ
Vaka-Helgafell
ISBN 978-9979-2-2163-0 Kilja
Endurminningar
Kristín Dahlstedt
Hafliði Jónsson
Endurminningar Kristínar Da-
hlstedt, veitingakonu, komu
fyrst út 1961 og vöktu mikla
athygli.
Saga Kristínar er nú talin
í flokki merkustu ævisagna
kvenna, sem komið hafa út
hérlendis, enda brautryðj-
andi um margt á fyrri hluta
síðustu aldar. Hún stundaði
sjálfstæðan veitingarekstur í
hálfa öld, ekki síst við Lauga-
veginn í Reykjavík og oftast
undir Fjallkonunafninu.
Einnig í rafbók.
246 bls.
Vestfirska forlagið
ISBN 978-9935-430-38-0
Leiðb.verð: 3.900 kr.
Feigð
Stefán Máni
Lögreglumaðurinn Hörður
Grímsson, sem lifað hefur af
sjávarháska og snjóflóð en
losnar ekki við drauga for-
tíðarinnar, bíður í ómerktum
bíl fyrir utan Litla-Hraun
eftir undirheimahrottanum
Símoni Erni Rekoja. Þeir eiga
óuppgerðar sakir … Kynngi-
mögnuð saga, full af krafti,
kynjum og spennu. Stefán
Máni hefur skrifað magnaðar
spennusögur sem hafa verið
gefnar út á nokkrum tungu-
málum.
523 bls.
FORLAGIÐ
JPV útgáfa
ISBN 978-9935-11-245-3 Kilja
Ferðin til stjarnanna
Ingi Vítalín (Kristmann
Guðmundsson)
Miðaldra framhaldsskóla-
kennari er numinn brott
af framandi verum. Í föru-
neyti þeirra ferðast hann um
víðáttur geimsins og fylgist
með lífi á öðrum hnöttum á
leið sinni til plánetunnar Laí.
Ferðin til stjarnanna er ein
fyrsta íslenska vísindaskáld-
sagan. Ármann Jakobsson
ritar formála.
256 bls.
Lesstofan
ISBN 978-9935-9089-4-0 Kilja