Bókatíðindi - 01.12.2012, Page 111
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 2 Endurútgáfur « ÍSLENSK AR »
109
Svartur á leik
Stefán Máni
Saga sem þótti marka
tímamót í íslenskri spennu-
sagnaritun og hefur nú verið
kvikmynduð. Stefán Máni
dregur upp trúverðuga mynd
af undirheimum Reykjavíkur
og hraði og spenna eru í
fyrirrúmi. Fléttan er óvænt og
margbrotin og það er engin
leið að leggja bókina frá sér.
548 bls.
FORLAGIÐ
JPV útgáfa
ISBN 978-9935-11-236-1 Kilja
Tómas Jónsson
Metsölubók
Guðbergur Bergsson
Þegar Tómas Jónsson Met-
sölubók kom út árið 1966
vakti hún strax mikið umtal,
hneykslun og aðdáun og
seldist upp, stóð undir nafni.
Aldrei hafði áður komið út
slík bók hér á landi. Í bók-
inni allri er sprengikraftur
nýsköpunarinnar og með
árunum hefur bókin öðlast
sinn sess í íslenskum bók-
menntum: Tómas Jónsson,
meistaraverk. Íslensk klassík
Forlagsins.
470 bls.
Forlagið
ISBN 978-9979-53-576-8 Kilja
Upphækkuð jörð
Auður Ava Ólafsdóttir
Ágústína býr í turnherbergi
við gúlpandi haf, þar sem
tunglið er ískyggilega ná-
lægt og Fjallið eina að baki.
Hún skýtur fugla og ræktar
villigróður í beinum röðum.
Fyrsta skáldsaga Auðar Övu
Ólafsdóttur.
122 bls.
Bjartur
ISBN 9789935 423658 Kilja
Uppkomin börn
alkóhólista
Að losna úr fjötrum fortíðar
Árni Þór Hilmarsson
Hér er farið yfir hvaða áhrif
alkóhólismi foreldra hefur
á æsku og þroska barna og
hvernig sjúkdómurinn mótar
líf þeirra og störf á fullorðins-
árum.
110 bls.
Almenna bókafélagið.
(BF-útgáfa)
ISBN 978-9935-426-34-5
Vögguvísa
brot úr ævintýri
Elías Mar
Vögguvísa kom fyrst út árið
1950 og er hún jafnan talin
ein fyrsta Reykjavíkursagan.
Hún er einnig sú fyrsta sem
gerir unglingamenningu eft-
irstríðsáranna að viðfangsefni
sínu, en Bambínó, aðalper-
sóna sögunnar, lifir og hrær-
ist í bandarískri fjölda- og
neyslumenningu. Höfundur
rannsakaði tungutak reyk-
vískra unglinga og safnaði
saman helstu slangurorðum
og orðasamböndum úr máli
þeirra. Safnið birtist í fyrsta
sinn í heilu lagi á prenti í
þessari útgáfu.
160 bls.
Lesstofan
ISBN 978-9935-9089-0-2 Kilja
Æfingin skapar
meistarann
Leikskóli fyrir stelpur og
stráka
Margrét Pála Ólafsdóttir
Hér rekur Margrét Pála
reynslu sína á fyrsta starfsári
leikskólans Hjalla í Hafnarfirði
og rökstyður kenningar sínar
um hvers vegna hún telji
best að kenna stúlkum og
drengjum ekki saman, hvers
vegna hún telji leikefni betra
en leikföng og hvers vegna
agi sé börnum nauðsynlegur,
svo eitthvað sé nefnt. Bókin
markaði spor í sögu upp-
eldis- og skólamála á Íslandi
og á ennþá brýnt erindi við
uppalendur og áhugafólk um
skólamál.
122 bls.
Almenna bókafélagið.
(BF-útgáfa)
ISBN 978-9935-426-35-2