Bókatíðindi - 01.12.2012, Page 138
136
Matur og drykkur B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 2
HaPP HaPP hurrah
Unnur Guðrún Pálsdóttir og
Erna Sverrisdóttir
Ensk útgáfa bókarinnar Happ
happ húrra sem út kom á síð-
ast ári. Í Happ-eldhúsinu eru
grænmeti, ávextir, hnetur
og fræ í öndvegi. Það er fátt
fallegra en litatónar ávaxta
og grænmetis. Litirnir bera
með sér lífsgleði og orku
og með hæfilegu magni af
hreinu kjöti og fiski verður til
dásamlegur matur. Í bókinni
eru fjölmargar uppskriftir að
hollum réttum og skreyttum
fallegum ljósmyndum.
140 bls.
Bókafélagið
ISBN 978-9935-426-25-3
Heilsuréttir
fjölskyldunnar
Berglind Sigmarsdóttir
Hér eru uppskriftir að ljúf-
fengum réttum sem fjöl-
skyldan elskar en bókin er
skrifuð fyrir þá sem vilja bæta
mataræði og lífsstíl fjölskyld-
unnar. Hér nýtur Berglind
aðstoðar eiginmanns síns,
landsliðskokksins Sigurðar
Gíslasonar, við gerð upp-
skriftanna og afraksturinn
er glæsileg lífsstíls- og mat-
reiðslubók, stútfull af girni-
legum heilsuréttum. Gefin
eru ráð um hvernig hægt
er að draga úr sykurneyslu
barna og ungmenna – og
hvernig við fáum börn og
unglinga til að borða heilsu-
samlegan mat og bæta lífsstíl
sinn.
240 bls.
Bókafélagið
ISBN 978-9935-426-24-6
Heilsusúpur og salöt
Auður Ingibjörg Konráðsdóttir
Hér er að finna uppskriftir að
girnilegum, hollum og fjöl-
breyttum súpum og salötum
við allra hæfi. Þetta er bók
fyrir þá sem vilja huga vel að
mataræði sínu og heilbrigði
en bjóða jafnframt upp á
ljúffenga en ekki síst fallega
og freistandi rétti. Höfundur
bókarinnar er annálaður
heilsukokkur og hefur meðal
annars haldið úti vinsælli
vefsíðu, www.heilsukokkur.
is. Í fyrra kom út eftir hana
bókin Heilsudrykkir. Sú bók
er nú uppseld.
110 bls.
Bókafélagið
ISBN 978-9935-426-36-9
Hollt og hátíðlegt
Guðrún Jóhannsdóttir
Hér eru uppskriftir að hollum
og næringarríkum mat fyrir
fólk sem vill fara óhefð-
bundnar leiðir í hátíðarmat-
seld. Höfundur hefur áður
gefið út bækurnar Hollt og
fljótlegt og Hollt og ódýrt
sem hlutu vinsældir og eru
væntanlegar í endurútgáfa.
132 bls.
Salka
ISBN 978-9935-17-061-3 Kilja
Into the North
Live well, eat well
– the Icelandic way
Gísli Egill Hrafnsson og
Inga Elsa Bergþórsdóttir
Þýð.: María Helga
Guðmundsdóttir
Höfundarnir voru tilnefndir
til Íslensku bókmenntaverð-
launanna í fyrra fyrir bók sína
Góður matur – gott líf. Þetta
er að hluta til ensk útgáfa
þeirrar bókar en með nýjum
texta sem er kynning á landi,
sögu og þjóð og fjölda nýrra
og stórglæsilegra mynda
af íslenskri náttúru og ís-
lenskum mat. Góð gjöf til er-
lendra vina sem vilja kynnast
íslenskri matargerð. Á ensku.
176 bls.
FORLAGIÐ
Vaka-Helgafell
ISBN 978-9979-2-2182-1Nýr
glæpasagnahöfundur
Skuggalega spennandi