Bókatíðindi - 01.12.2012, Page 142
140
Matur og drykkur B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 2
Orð, krydd & krásir
Spennandi og girnilegir réttir
af slóðum Biblíunnar
Sigrún Óskarsdóttir og Kristín
Þóra Harðardóttir
Áhugaverð og glæsileg bók
með spennandi og girnileg-
um réttum af söguslóðum
Biblíunnar. Hráefnið er hins
vegar úr íslenskri náttúru til
sjávar og sveita. Einfaldur og
heilsusamlegur matur en um
leið kitlandi og framandi!
169 bls.
Veröld
ISBN 978-9935-440-26-6
Pítsur
Carla Bardi
Þýð.: Nanna Gunnarsdóttir
Hér er að finna meira en 50
uppskriftir að gómsætum
pítsum, allt frá hefðbundn-
um ítölskum pítsum yfir í
frumlegri útfærslur frá öllum
heimshornum. Uppskriftin
að deiginu er einföld og fljót-
gerð, deigið er blandað og
hnoðað á einungis nokkrum
mínútum. Með bókinni verð-
ur pítsugerðin skemmtileg
og öll fjölskyldan getur tekið
þátt í að hnoða og leggja
áleggið á þar til ljúffeng og
nærringarrík máltíð er komin
á borðið.
128 bls.
Bókafélagið
ISBN 978-9935-426-32-1
Safaríkt líf
Ljúffengir heilsudrykkir
Þorbjörg Hafsteinsdóttir
68 uppskriftir af ljúffengum
heilsudrykkjum; þeytingum,
hristingum og grænum
söfum sem eru stútfullar af
hollustu. Njóttu – og líf þitt
verður safaríkara!
146 bls.
Salka
ISBN 978-9935-17-039-2 Kilja
Stóra Disney
heimilisréttabókin
Ritstj.: Margrét Þóra
Þorláksdóttir
Þessi bók hefur að geyma 112
spennandi, hollar og góm-
sætar uppskriftir fyrir upp-
rennandi matreiðslumenn.
Hér er að finna einfaldar
uppskriftir af kraftmiklum
kjötréttum, skemmtilegum
fiskréttum, girnilegum græn-
metisréttum, sjóðheitum
súpum, freistandi salötum,
svo ekki sé minnst á góm-
sætar samlokur.
140 bls.
Edda útgáfa
ISBN 978-9935-13-108-9
Leiðb.verð: 3.990 kr.
Súpur allt árið
Sigurveig Káradóttir
Myndir: Gunnar Sverrisson
Sigurveig Káradóttir gefur
hér uppskriftir að kjarngóð-
um súpum úr fersku græn-
meti og bragðmiklu soði.
Fjölbreytni ræður ríkjum og
finna má strauma frá ýmsum
heimshornum.
72 bls.
Salka
ISBN 978-9935-17-059-0 Kilja
Villibráð
Úlfar Finnbjörnsson
Myndir: Karl Petersson
Myndskr.: Jón Baldur Hlíðberg
Glæsilegt alfræðirit um nýt-
ingu villibráðar, fullt af fróð-
leik og ómótstæðilegum sæl-
kerauppskriftum. Stóra bókin
um villibráð kom út 2011 en
er nú gefin út lítið breytt í
minna broti.
288 bls.
Salka
ISBN 978-9935-17-064-4
sagnahöfundur
Vísindaskáldsaga
Nýr