Bókatíðindi - 01.12.2012, Page 169
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 2 Fræði og bækur almenns efnis
167
Mótun menningar –
Shaping Culture
Afmælisrit til heiðurs
Gunnlaugi A. Jónssyni
Áhrif Gamla testamentisins á
samfélag og menningu. Höf-
undar eru m.a. helstu Biblíu-
fræðingar heims.
Margir höfundar.
400 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
ISBN 978-9979-66-300-3
Leiðb.verð: 4.985 kr.
Nám fyrir alla
Diane L. Ferguson o.fl.
Þýð.: Ásta Björk Björnsdóttir
Hér er fjallað um kennslu og
mat í skóla margbreytileikans
og hvernig hægt er að gera
nám að gæðanámi fyrir alla
nemendur. Bent er á leiðir að
þessu marki og gefin dæmi.
Þá eru birt eyðublöð sem
kennarar geta nýtt sér til að
kynnast nemendum sínum
betur, auka samstarf við
samkennara og fjölskyldur
nemenda, kenna í getu-
blönduðum hópum, meta
nám nemenda og veita þeim
endurgjöf.
Bókin er samin af hópi
kennara og sérkennara og
er afrakstur 15 ára þróunar-
starfs. Hugmyndum bókar-
innar er ætlað að styrkja alla
kennara í kennslu sinni og
benda á nýjar leiðir í sam-
starfi bekkjarkennara og sér-
kennara.
122 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 978-9979-54-940-6
Leiðb.verð: 4.900 kr. Kilja
Umhverfisrit
Bókmenntafélagsins
Náttúruauður
Brynhildur Davíðsdóttir
Ritstj.: Trausti Jónsson
Hagrænt mikilvægi náttúru-
auðs og þjónustu náttúrunnar.
120 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
ISBN 978-9979-66-305-8
Leiðb.verð: 3.790 kr. Kilja
Náttúruvá á Íslandi
Eldgos og jarðskjálftar
Ritstj.: Júlíus Sólnes,
Freysteinn Sigmundsson og
Bjarni Bessason
Náttúruvá á Íslandi er fræði-
rit fyrir almenning þar sem
helstu sérfræðingar landsins
fjalla um eldgos og jarð-
skjálfta. Bæði er greint frá eðli
þessara náttúrufyrirbæra og
þeirri vá sem af þeim stafar.
Sagt er frá nýjustu rann-
sóknum í jarðvísindum og
jarðskjálftafræði sem tengj-
ast Íslandi. Er bókin þannig
einstakt yfirlit yfir þekkingu
okkar á þessum þáttum ís-
lenskrar náttúru.
Um sextíu höfundar hafa
lagt til efni í bókina, og í
henni eru nærri 1000 ljós-
myndir, teikningar og skýr-
ingamyndir.
Náttúruvá á Íslandi er án
efa eitt ítarlegasta og efnis-
mesta rit um eldvirkni og
jarðskjálfta á Íslandi sem
gefið hefur verið út.
750 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 978-9979-54-943-7
Leiðb.verð: 19.900 kr.
Návígi á Norðurslóðum
Íshafsskipalestirnar og
ófriðurinn 1942-1945
Magnús Þór Hafsteinsson
Hitler sagði norðurslóðir
örlagasvæði seinni heims-
styrjaldarinnar. Hann óttaðist
innrás í Noreg m.a. frá Íslandi.
Miklir skipalestaflutningar
fóru um hafsvæðin við Ís-
land. Þeim fylgdu hatrammar
sjóorrustur við herskip og
kafbáta auk árása á Noreg.
Stærstu herskipum Þjóð-
verja var að lokum eytt. Þjóð-
verjar brenndu niður byggðir
Norður-Noregs. Valdahlutföll
á norðurslóðum gerbreytt-
ust. Kalda stríðið hófst. Lega
Íslands skipti höfuðmáli í
þessum ofsafengnu átökum.
Bókin er sjálfstætt framhald
Dauðans í Dumbshafi (2011).
Sú hlaut mjög góðar viðtökur
lesenda og einróma lof gagn-
rýnenda. Báðar varpa nýjum
skilningi á sögu seinni heims-
styrjaldar, – ómissandi öllu
áhugafólki um sagnfræði,
stjórnmál og æsispennandi
viðburði.
Bókaútgáfan Hólar
ISBN 978-9935-435-20-0
Leiðb.verð: 7.480 kr.