Bókatíðindi - 01.12.2012, Page 174
172
Fræði og bækur almenns efnis B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 2
svo virtist sem lágkúrulegar
afurðir erlendrar alþýðu-
menningar hefðu afvegaleitt
hana. Í þriðju þemagreininni
leiðir Þröstur Helgason svo
getum að því að þjóðernisleg
íhaldssemi hafi verið ástæða
þess að módernismi átti ekki
upp á pallborðið á Íslandi fyrr
en eftir lýðveldisstofnun árið
1944.
186 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 978-9979-54-966-6
Leiðb.verð: 3.290 kr. Kilja
Ritið 2/2012
Kirkja í krísu
Ritstj.: Sólveig Anna
Bóasdóttir og Þröstur
Helgason
Vandi kirkjunnar er þema
heftisins – krísan sem hún
stendur frammi fyrir – í for-
tíð, nútíð og framtíð. Fjórir
höfundar sem allir eru guð-
fræðingar fjalla um efnið
frá ólíkum sjónarhornum
og greina orsakir jafnt sem
afleiðingar þeirra krísa sem
um er fjallað. Sameiginlegt
stef þemagreinanna er að
krísa sé ekkert nýtt í kirkju-
legu samhengi, allra síst í
hinu evangelísk-lútherska
kirkjudeildarsamhengi sem
íslenska þjóðkirkjan tilheyrir.
226 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 978-9979-54-971-0
Leiðb.verð: 3.290 kr. Kilja
Saga
Tímarit Sögufélags.
L: 1 2012 og L: 2 2012
Ritstj.: Sigrún Pálsdóttir
Tímaritið Saga kemur út
tvisvar á ári, vor og haust.
Efni þess er fjölbreytt og
tengist sögu og menningu
landsins í víðum skilningi.
Þar birtast m.a. greinar, við-
töl og umfjallanir um bækur,
sýningar, heimildamyndir og
kvikmyndir. Ómissandi öllum
þeim sem áhuga hafa á sögu
Íslands. Tekið er við nýjum
áskrifendum hjá Sögufélagi;
nánar á www.sogufelag.is.
244 bls.
Sögufélag
ISSN 0256-8411
Kilja
Sagan af klaustrinu
á Skriðu
Steinunn Kristjánsdóttir
Í bókinni er rakin saga Skriðu-
klausturs. Sagt er frá leitinni
að klaustrinu og óvæntum
niðurstöðum uppgraftarins
en þar kom í ljós að Skriða var
ekki aðeins aðsetur munka
heldur einnig skjól hinna
sjúku og dauðvona. Í verkinu
eru yfir 150 ljósmyndir, kort
og teikningar.
375 bls.
Sögufélag
ISBN 978-9979-9902-6-0
Leiðb.verð: 5.990 kr.
Samskiptafærni
Samskipti, hópar og
teymisvinna
Haukur Ingi Jónasson og
Helgi Þór Ingason
Í Samskiptafærni er fjallað um
það hvernig efla megi sam-
skiptafærni lesenda, einkum
þeirra sem hafa mannaforráð
og vinna í verkefnahópum
og teymum. Bókin er í senn
kynning á nokkrum mikil-
vægum kenningum um hópa
og handbók um hvernig má
bæta samskiptin í samvinnu
við aðra. Höfundar bókar-
innar eru forstöðumenn í
meistaranámi í verkefna-
stjórnun (MPM) og ráðgjafar
hjá Nordica ráðgjöf.
266 bls.
FORLAGIÐ
JPV útgáfa
ISBN 978-9935-11-215-6
Óbundin
Sjálfstæðisflokkurinn
– Átök og uppgjör
Styrmir Gunnarsson
Hér er lesandanum boðið
inn í bakherbergi stærsta
stjórnmálaflokks þjóðarinnar
þar sem menn í innsta hring
tókust harkalega á um mörg
stærstu mál 20. aldar – fjarri
kastljósi fjölmiðlanna.
284 bls.
Veröld
ISBN 978-9935-440-37-2
Skagfirskar
skemmtisögur 2
Meira fjör!
Björn Jóhann Björnsson
Skagfirskar skemmtisögur
koma nú út öðru sinni. Fyrra
bindi varð metsölubók og vel
tekið víða um land, ekki ein-
göngu meðal Skagfirðinga.
Hér koma 237 óborganlegar
gamansögur til viðbótar
af Skagfirðingum, gestum