Bókatíðindi - 01.12.2012, Page 190
188
Útivist, íþróttir og tómstundir B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 2
Hlýtt og mjúkt fyrir
minnstu börnin
May B. Langhelle
Þýð.: Ingveldur Róbertsdóttir
Gullfalleg bók fyrir mömmur,
ömmur, frænkur, vinkonur
og alla sem langar til að
prjóna eitthvað fallegt og
mjúkt handa litlu kríli – flíkur,
teppi, tuskudýr og fleira.
Uppskriftirnar eru einfaldar
og aðgengilegar og hér má
einnig finna prjónakennslu
í máli og myndum, fróðleik
og góð ráð um prjónaskap,
garntegundir, þvott og fleira.
120 bls.
FORLAGIÐ
Vaka-Helgafell
ISBN 978-9979-2-2171-5
Húfuprjón
57 uppskriftir á kríli, krakka,
konur og karla
Guðrún S. Magnúsdóttir
Myndir: Ýmir Jónsson
Það er leikur einn að prjóna
fallegar, skrautlegar og
skemmtilegar húfur á alla
fjölskylduna með aðstoð
þessarar bókar. Hér eru ein-
faldar og skýrar uppskriftir,
gagnlegar leiðbeiningar, góð
ráð og stutt kennsla í prjóni
og hekli. Höfundurinn er
handavinnukennari og hefur
áður sent frá sér hina vinsælu
bók Sokkaprjón.
144 bls.
FORLAGIÐ
Vaka-Helgafell
ISBN 978-9979-2-2172-2
Jólakúlur
Arne Nerjordet og
Carlos Zachrison
Þýð.: Ingveldur Róbertsdóttir
Arne og Carlos eru vinsælir
hönnuðir sem hafa sannar-
lega slegið í gegn með prjón-
uðu jólakúlunum sínum. Bók-
in hefur selst í tugþúsundum
eintaka í Noregi og verið
þýdd á fjölda tungumála.
Jólakúlurnar eru frumlegar
og óvenjulegar en byggjast
um leið á sterkum hefðum
og fallegu jólamynstrin er
líka hægt að nota á alls konar
jólaskraut.
144 bls.
FORLAGIÐ
Vaka-Helgafell
ISBN 978-9979-2-2193-7
KenKen-talnaþrautir
KenKen-talnaþrautir I
KenKen-talnaþrautir 2
Tetsuya Miyamoto
KenKen-talnaþrautirnar hafa
náð miklum vinsældum
enda skerpa þær heilann,
auka hæfni til að koma auga
á lausnir og eru þess utan
bráðskemmtilegar fyrir alla
aldurshópa, jafnt unga sem
aldna. Í hvorri bók eru 100
þrautir og nú er bara að hefj-
ast handa við þær.
Bókaútgáfan Hólar
ISBN 978-9935-435-16-3/-17-0
Nýr
glæpasagnahöfundur
Skuggalega spennandi
sagnahöfundur
Vísindaskáldsaga
Nýr