Bókatíðindi - 01.12.2012, Page 199
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 2
197
Rafbækur
Gleðigjafinn
Þráinn Þorvaldsson
Jákvætt hugarfar og góð mannleg sam-
skipti eru tveir af mikilvægustu þátt-
unum í sköpun hamingjuríks lífs en
þeir vilja gleymast í hraða nútímans.
Hamingjureglurnar 12 eru leið til þess að
vera öðrum gleðigjafar og leggja inn á
lífshamingjubókina.
emma.is – rafbókaveita
ISBN 978-9935-20-151-5
Leiðb.verð: 1.890 kr.
Form: ePub/mobi
Gamlinginn sem skreið út um
gluggann og hvarf
Jonas Jonasson
Þýð.: Páll Valsson
Gleðisprengja sem sat efst á íslenskum
metsölulistum mánuðum saman. Ærsla-
fengin og heillandi saga um ævintýri All-
ans gamla, sem strýkur af elliheimilinu á
hundrað ára afmælinu, og ferðalag hans
um heiminn og söguna.
Forlagið – JPV útgáfa
ISBN 978-9935-11-247-7
Form: ePub
Fréttaritarinn Oddur
Bragi Þórðarson
Ævisaga Odds Sveinssonar fréttaritara
Morgunblaðsins. Oddur var kennari,
farmaður, skáld og í forustusveit Ung-
mennafélagsins og verkalýðsfélagsins.
Hann var heimsborgari, farmaður, kaup-
maður og síðast en ekki síst frægasti
fréttaritari á Íslandi.
emma.is – rafbókaveita
ISBN 978-9935-20-223-9
Leiðb.verð: 1.790 kr.
Form: ePub/mobi
Fórnardauði
Lee Child
Þýð.: Jón St. Kristjánsson
Á ferð um Nebraska flækist harðjaxlinn
Jack Reacher inn í háskalega atburðarás
og þarf að takast á við vöðvatröll og
harðsvíraða útsendara glæpagengja til
að komast að ógnvænlegu leyndarmáli.
Forlagið – JPV útgáfa
ISBN 978-9935-11-284-2
Form: ePub
Forsetinn, prinsessan
og höllin sem svaf
Gerður Kristný
Myndir: Halldór Baldursson
Þriðja bókin í þessum fjöruga bókaflokki.
Hér fer forsetinn í heimsókn til prinsess-
unnar og lendir í spennandi ævintýrum
í höllinni!
Forlagið – Mál og menning
ISBN 978-9979-3-3275-6
Form: ePub
Forsetinn er horfinn
Anne Holt
Þýð.: Solveig Brynja Grétarsdóttir
Fyrsti kvenforseti Bandaríkjanna hverfur í
opinberri heimsókn til Noregs. Svo virðist
sem heimsveldinu sé ógnað og jafnframt
konungdæmi Noregs, auk þess hriktir í
pólitískum stoðum víða um heim.
Sjálfstætt framhald Það sem aldrei ger-
ist og Það sem mér ber sem sátu lengi á
metsölulistum.
Salka
ISBN 978-9935-418-92-0Form: ePub
Flöskuskeyti frá P
Jussi Adler-Olsen
Þýð.: Jón St. Kristjánsson
Magnaðasta spennusaga þessa spútniks
í norrænum krimmum. Fyrir hana hlaut
hann Glerlykilinn 2010. „… vel samin bók
og æsispennandi.“ – KB/Morgunblaðið
Forlagið – Vaka-Helgafell
ISBN 978-9979-2-2206-4
Form: ePub
Fimmtíu gráir skuggar
E L James
Þýð.: Ásdís Guðnadóttir
Fifty shades-þríleikurinn er vinsælasti
bókaflokkur heimsins og bækurnar um
eldheitar ástir og djarfar ástríður hinnar
ungu og saklausu Anastasiu Steele og
auðjöfursins Christians Grey, sem á sér
myrka fortíð, hafa selst í tugmilljónum
eintaka.
Forlagið – JPV útgáfa
ISBN 978-9935-11-299-6
Form: ePub