Bókatíðindi - 01.12.2012, Page 200
198
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 2Rafbækur
Handbók hrekkjalómsins
Logi Bergmann Eiðsson
Það er algjör misskilningur að innra með
Loga Bergmann Eiðssyni búi settlegur
fréttaþulur í snyrtilegum jakkafötum.
Nei, hans innra sjálf hefur alla tíð verið
í meira lagi uppátækjasamt og hrekkjótt-
ara en gengur og gerist.
Sjá nánar á bls. 154.
Sena
ISBN 978-9935-9104-5-5
Leiðb.verð: 3.200 kr.
Form: ePub
Halldór Laxness – ævisaga
Halldór Guðmundsson
Verkum þjóðskáldsins Halldórs var oft
fagnað, margir reiddust þeim – en engum
var sama. Hann var maður andstæðna,
stór í hugsjónum, verkum og mistökum.
Halldór Guðmundsson rekur hér líf hans
og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin
fyrir verkið.
Forlagið – JPV útgáfa
ISBN 978-9935-11-268-2
Form: ePub
Hagræn áhrif tónlistar
Ágúst Einarsson
Í bókinni er lýst er hvernig tónlist er
umtalsverður þáttur í efnahagslífinu og
greint er frá mismunandi sviðum menn-
ingar. Birt eru stutt æviágrip 50 einstak-
linga sem hafa sett svip sinn á íslenskt
tónlistarlíf síðast liðin 100 ár.
96 bls.
Háskólinn á Bifröst
Dreifing: emma.is – rafbókaveita
ISBN 978-9935-9093-1-2Form: pdf
Opinn aðgangur
Hagræn áhrif kvikmyndalistar
Ágúst Einarsson
Í bókinni er greint frá þróun kvikmynda
sem hluta af menningu og skapandi
atvinnugreinum, jafnt hér á landi sem
erlendis. Lýst er hvernig skapandi
atvinnugreinar geta orðið einn helsti
atvinnuvegurinn hérlendis á 21. öldinni.
248 bls.
Háskólinn á Bifröst
Dreifing: emma.is – rafbókaveita
ISBN 978-9935-9093-0-5Form: pdf
Opinn aðgangur
Götumálarinn
Þórarinn Leifsson
Spennandi skáldævisaga um ungan Ís-
lending á flakki um Spán og Marokkó
vorið 1986. Bók sem vakti verðskuldaða
athygli þegar hún kom fyrst út.
Forlagið – Mál og menning
ISBN 978-9979-3-3264-0
Form: ePub
Göngutúr Fuglabúrsins
Baldur V. Karlsson
Dularfullur maður gengur inn á kaffihús-
ið Göngutúr Fuglabúrsins. Hann sest hjá
ungum rithöfundi með ritstíflu og finnur
sig knúinn til að segja honum sögu um
Eld, ungan mann sem dregst inn í heim
galdra og goðsagna án þess að vilja það.
emma.is – rafbókaveita
ISBN 978-9935-20-204-8
Leiðb.verð: 2.036 kr.
Form: ePub/mobi
Grafarþögn
Arnaldur Indriðason
Mannabein finnast í grunni nýbyggingar
í Reykjavík og smám saman kemur göm-
ul og sár saga upp á yfirborðið. Erlendur,
Sigurður Óli og Elínborg eru í essinu sínu
í þessari áhrifamiklu harmsögu. Ein allra
sterkasta bók Arnaldar.
Forlagið – Vaka-Helgafell
ISBN 978-9979-2-2207-1
Form: ePub
Glæsir
Ármann Jakobsson
Hver er Glæsir? Forynja eða tröll, þessa
heims eða annars? Hér tekst Ármann á
við sagnaarfinn á frumlegan og hugvit-
samlegan hátt. Viðburðarík, dramatísk
og neistandi fyndin saga, barmafull af
tilfinningum.
Forlagið – JPV útgáfa
ISBN 978-9935-11-234-7
Form: ePub