Bókatíðindi - 01.11.2023, Blaðsíða 2
Kæri bókaunnandi
O kkar einstaka jólabókaflóð er brostið á. Nýjar bækur renna
nánast á færibandi út úr prentsmiðjum og fylla hillur og borð
bókaverslana. Umfangið er mikið og það getur verið erfitt að
henda reiður á öllum þeim fjölda nýrra og áhugaverðra bóka sem út
koma á þessum tíma ársins. Að ekki sé nú minnst á allar þær bækur sem
komið hafa út fyrr á árinu og eiga fullt erindi til lesenda á hvaða árstíma
sem er. Vonandi eru okkar árlegu Bókatíðindi þér kærkomin til að
auðvelda valið úr útgáfuflóru ársins.
Síðustu ár hefur mikil gróska og fjölbreytni einkennt íslenska bókaútgáfu.
Svo mikil að það vekur athygli langt út fyrir landsteinana hversu margar
bækur eru gefnar hér út. Reyndar er það staðreynd að hér á landi er
að finna eitt hæsta hlutfall nýrra titla sem gefnir eru út árlega miðað
við höfðatölu. Á alþjóðlegum vettvangi bókaútgefenda erum við oft
beðin um að gefa skýringar á þessu. Þær liggja ansi djúpt í sögu okkar,
menningu og sagnahefð. Sú ríka þörf okkar og hefð langt aftur í aldir
að segja sögur og miðla þeim til annarra í bókarformi er hreinlega hluti
af erfðamengi okkar. Góðar viðtökur bókaunnenda, einlægur áhugi
og þörf fyrir nýtt lesefni á ári hverju er svo vindurinn sem gefur okkur
stöðugan byr í seglin.
Það er einlæg ósk okkar að í þessum Bókatíðindum finnir þú lesefni til
að fylgja þér og þínum fram á nýtt ár. Um leið minnum við á vefinn okkar
bokatidindi.is. Þar finnur þú allar upplýsingar prentuðu útgáfunnar og
meira til. Jafnframt viljum við vekja athygli lesenda á því að eldri
útgáfur Bókatíðinda eru nú aðgengilegar á timarit.is. Elstu samantektir
ársútgáfunnar ná allt aftur til 1890 en ritið gekk undir nafninu Bókaskrá
Bóksalafélags Íslands fram á áttunda áratug síðustu aldar.
Megir þú og allir þínir eiga gefandi og gleðileg íslensk bókajól!
Heiðar Ingi Svansson,
formaður Félags íslenskra bókaútgefenda.
Undir kápumyndum allra bóka má
nú finna tákn sem vísa til útgáfu-
forms. Táknskýringar má finna
neðst á öllum kynningarblaðsíðum.
GOR Gormabók
HSP
Harðspjalda bók – allar
blaðsíður úr hörðum pappír
HLB Hljóðbók
IB
Innbundin bók – kápuspjöld
úr hörðum pappír
KIL Kilja
RAF Rafbók
SVK
Sveigjanleg kápa – líkt og
kilja en í annarri stærð
Merking tákna
í Bókatíðindum
BÓKATÍÐINDI 2023
Útgef andi: Félag íslenskra bóka út gef enda
Bar óns stíg 5
101 Reykja vík
Sími: 511 8020
Netfang: fibut@fibut.is
Vef ur: www.bokatidindi.is
Hönn un kápu: Halldór Baldursson og Ámundi Sigurðsson
Ábm.: Bryndís Loftsdóttir
Upp lag: 35.000
Prentvinnsla: Prentmet Oddi ehf., umhverfisvottað fyrirtæki
ISSN 1028-6748
Efnisyfirlit
Barna- og ungmennabækur
Myndríkar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3
Skáldverk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12
Fræði og bækur almenns efnis . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 20
Unglingabækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 21
Teiknimyndasögur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 23
Skáld verk
Íslensk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 23
Þýdd . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 33
Ljóð og leikhandrit . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 41
Ævi sög ur og end ur minn ing ar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 46
Fræðirit, frásagnir og handbækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 49
Hannyrðir og matreiðsla . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 60
Íþróttir og útivist . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 62
Listir og ljósmyndir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 63
Náttúra, dýralíf og landshættir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 65
Sagnfræði, trúarbrögð og ættvísi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 66
Sálfræði, sjálfshjálp og andleg leiðsögn . . . . . . . . . . . . . . . . 67
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa2