Bókatíðindi - 01.11.2023, Blaðsíða 33

Bókatíðindi - 01.11.2023, Blaðsíða 33
KIL Bernska Höf: Tove Ditlevsen Þýð: Þórdís Gísladóttir Tove Ditlevsen ólst upp í verkamannafjölskyldu á Vesturbrú í Kaupmannahöfn. Hún þykir með merkari höfundum Dana og hefur notið vinsælda hjá mörgum kynslóðum. Verk hennar gefa einstaka innsýn í líf kvenna á 20. öld og eru nú lesin sem sígildar bókmenntir. Bernska er fyrsti hlutinn í endurminningaþríleik en Gift, lokahlutinn, er þegar kominn út. 112 bls. Benedikt bókaútgáfa KIL Betri maður Höf: Louise Penny Þýð: Friðrika Benónýsdóttir Mitt í hrikalegum vorflóðum, sem verða til þess að lýst er yfir neyðarástandi í héraðinu, kemur faðir að máli við lögregluforingjann Armand Gamache. Dóttir mannsins hefur horfið með dularfullum hætti. Gamache hefur öðru að sinna en samúð hans með manninum verður til þess að hann fer að huga að málinu. 554 bls. Ugla KIL Blekkingin Höf: Camilla Läckberg og Henrik Fexeus Þýð: Sigurður Þór Salvarsson Hörkuspennandi saga eftir glæpasagnadrottninguna Camillu Läckberg og sjáandann Henrik Fexeus – sjálfstæð bók í æsispennandi þríleik um lögreglukonuna Mínu Dabiri og sjáandann Vincent Walder. Kassinn og Gátan hafa slegið rækilega í gegn – nú er það Blekkingin sem þenur taugar lesandans. Sögur útgáfa KIL RAF HLB Blóðmáni Höf: Jo Nesbø Þýð: Halla Kjartansdóttir Harry Hole ætlar að drekka sig í hel því líf hans er í rúst. Þegar velgjörðarkona hans lendir í klandri ákveður hann að bjarga henni og á sama tíma fær hann tilboð um að vinna fyrir norskan auðmann. Tvær konur hafa fundist myrtar og er hann meðal grunaðra. Harry hefur nauman tíma til að leysa málið og flestir í lögreglunni eru andsnúnir honum. 544 bls. Forlagið - JPV útgáfa Skáldverk ÞÝDD SVK RAF HLB 9. nóvember Höf: Colleen Hoover Þýð: Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir Fallon kynnist Ben, upprennandi rithöfundi, daginn áður en hún hyggst flytja þvert yfir landið. Þau laðast hvort að öðru og ákveða að verja saman síðasta deginum hennar í Los Angeles. Viðburðarík ævi Fallon veitir Ben innblástur að hans fyrstu skáldsögu og þau ákveða að hittast árlega á þessum sama degi til að fylla inn í söguþráðinn. 368 bls. Björt bókaútgáfa - Bókabeitan KIL RAF HLB Doggerland Að duga eða drepast Höf: Maria Adolfsson Þýð: Ísak Harðarson Á sólríkum degi koma íbúar Doggerlands saman við höfnina. Gleðin breytist í martröð þegar skotið er á fólk en byssumaðurinn finnst síðan látinn. Karen Eiken Hornby, sem er komin átta mánuði á leið, er ákveðin í að komast að því hvað bjó að baki árásinni. Um leið stofnar hún lífi sínu og annarra í hættu. Þetta er fjórða bókin í Doggerland-seríunni. 372 bls. Forlagið - JPV útgáfa KIL RAF Að hálfu horfin Höf: Brit Bennett Þýð: Ragna Sigurðardóttir Bandaríska metsölubókin Að hálfu horfin gerist á sjötta áratug 20. aldar og fjallar um tvíburasysturnar Stellu og Desirée sem eru af blönduðum uppruna. Þegar þær strjúka að heiman á táningsaldri tekur önnur systirin skrefið yfir í veröld hvíta fólksins og afneitar uppruna sínum. En örlög þeirra fléttast óvænt saman aftur með næstu kynslóð. Forlagið - Mál og menning KIL RAF HLB Arfur og umhverfi Höf: Vigdis Hjorth Þýð: Ísak Harðarson Þegar foreldrar Bergljótar ákveða að yngri dæturnar fái sumarbústaði fjölskyldunnar í fyrirframgreiddan arf, en í staðinn fái hún og bróðir hennar peninga langt undir virði bústaðanna, fara í gang erfðadeilur sem leiða af sér átakamikið fjölskylduuppgjör. Þekktasta verk Vigdisar Hjorth sem hefur hlotið fjölmörg verðlaun. 344 bls. Forlagið - Mál og menning Hó, hó, hó! Jólabóka, bókajól góð gjöf Bóksala stúdenta, boksala.is B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 33GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa Skáldverk ÞÝDD Þýdd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.