Bókatíðindi - 01.11.2023, Blaðsíða 29

Bókatíðindi - 01.11.2023, Blaðsíða 29
IB RAF Náttúrulögmálin Höf: Eiríkur Örn Norðdahl Árið 1925 kallar biskup Íslands til prestastefnu á Ísafirði. Megintilgangurinn virðist vera að storka þjóðtrú landans og sýna mátt kristindómsins frammi fyrir hindurvitnum, spíritisma og náttúruöflum. Hér er brugðið á leik með heimildir og staðreyndir í bráðskemmtilegri frásögn af umbreytingatímum í sögu þjóðarinnar og heimsbyggðarinnar allrar. 597 bls. Forlagið - Mál og menning SVK RAF Næturheimsókn Höf: Jökull Jakobsson Jökull Jakobsson var eitt vinsælasta leikskáld landsins og ástsæll útvarpsmaður. Ferilinn hóf hann hins vegar sem sagnaskáld og árið 1962 sendi hann frá sér smásagnakverið Næturheimsókn. Jökull hefði orðið níræður á árinu og af því tilefni kemur bókin út í nýrri útgáfu. Sögurnar gefa glögga innsýn í íslenskt samfélag á mótunarskeiði. 107 bls. Forlagið - Mál og menning KIL RAF HLB Óbragð Höf: Guðrún Brjánsdóttir Grátbrosleg ástar- og ferðasaga um Hjalta, sem hefur siglt í strand í lífinu og leitar á náðir sjálfshjálparhópsins Kakófylkingarinnar. Áður en varir er hann kominn á bólakaf í hugleiðslu og kakódrykkju, en ekki er allt sem sýnist í þessum ágæta félagsskap. 251 bls. Forlagið - JPV útgáfa IB Óspakseyrargátan Höf: Finnbogi Hermannsson Óspakseyrargátan gerist á Vestfjörðum árið 1910 og á sér sviplegan endi eftir löng og þrúgandi réttarhöld, bæði á Ströndum og í Reykhólasveit. 120 bls. Finnbogi Hermannsson KIL Prestsetrið saga um glæp Höf: Ármann Jakobsson Sjötta bók Ármanns um lögregluteymi Kristínar og Bjarna, en hver þeirra er sjálfstæð. „Prestsetrið er bráðskemmtileg og vel uppbyggð sakamálasaga, Ármanni er líka lagið að skapa áhugaverðar persónur og sá hæfileiki nýtur sín vel í þessari sögu.“ Vikan 280 bls. Bjartur IB Megir þú upplifa Höf: Bjarni Þór Pétursson Í Vesturbænum býr breyskur maður í eilífri leit að fegurð lífsins um leið og hann tekst á við persónulegan harm. Hann þráir frelsi æskunnar og hina brothættu fullkomnun sem er rétt utan seilingar. Við fylgjum honum í gegnum ferðalög, endurminningar og hjákátleg samskipti við konurnar í lífi hans. 152 bls. Króníka IB Melankólía vaknar Höf: Sölvi Björn Sigurðsson Embla fer í ferðalag á heilsuhæli í afskekktum dal við nyrstu strendur Íslands. Á leið þangað taka málin óvænta stefnu. Í faðmi fjallanna á Fagraskaga sækja á Emblu spurningar sem krefja hana um að leita aftur til upphafsins. – Nútímaævintýri frá einum af okkar áhugaverðustu höfundum. 224 bls. Sögur útgáfa IB RAF Men Vorkvöld í Reykjavík Höf: Sigrún Pálsdóttir Ungur menningarblaðamaður með drauma um einleikaraferil sem flautuleikari er sendur á fund fyrrum utanríkisráðherra til að taka viðhafnarviðtal. Heimsóknin tekur hins vegar fljótlega óvænta stefnu inn í myrk skúmaskot. Fyndin, snörp og spennandi saga um leit að ljósi, heigulshátt og hugrekki, listsköpun og vald. 145 bls. Forlagið - JPV útgáfa IB Miðillinn Höf: Sólveig Pálsdóttir Á köldum vetrarmorgni er rannsóknarlögreglan kölluð út að Hólavallagarði. Innan um þá sem þar hafa verið lagðir til hinstu hvílu finnst lík eldri konu og fljótt er ljóst að dauðdaga hennar hefur borið að með saknæmum hætti. Hver getur hafa átt eitthvað sökótt við þessa konu sem virðist hafa verið hlédræg, vanaföst og einförul? 288 bls. Salka SVK Móðurást: Oddný Höf: Kristín Ómarsdóttir Oddný Þorleifsdóttir, fædd 1863, elst upp í Bræðratungu, í hópi duglegra og glaðsinna systkina. Lífsbaráttan er hörð. „Móðurfólk mitt hélt ekki dagbækur sem ég veit af, það afmáði ummerki, gekk svo snyrtilega um að það skildi ekki eftir sig efniskennd spor. Að skrifa söguna eru því drottinssvik við móðurfólk mitt, einnig skuld við það og þökk." 208 bls. Benedikt bókaútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 29GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa Skáldverk ÍSLENSK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.