Bókatíðindi - 01.11.2023, Blaðsíða 51
KIL
Brýrnar yfir Eyjafjarðará
Stiklað á stóru úr 100 ára sögu brúa yfir Eyjafjarðará
Höf: Arnór Bliki Hallmundsson
Yfir Eyjafjarðará liggja alls ellefu brýr en haustið
2023 er liðin öld síðan áin var brúuð á óshólmunum
sunnan Akureyrar. Hér er áin rakin frá upptökum til
ósa þar sem hver brú fær mynd og stutta umfjöllun:
Hvenær var brúin byggð, hvar er hún og hvað
má sjá í hennar nánasta umhverfi. Auk annarra
fróðleiksmola sem höfundur gaukar að lesendum.
57 bls.
Arnór Bliki Hallmundsson
SVK
Búseti 1983–2023
Baráttusaga
Höf: Páll Gunnlaugsson
Húsnæðissamvinnufélagið Búseti var
stofnað 26. nóvember 1983 og er því 40 ára
á útgáfuári þessarar bókar, 2023. Stiklað er
á stóru í 40 ára baráttusögu Búseta.
178 bls.
Búseti
SVK
Dauðinn
Raunsannar frásögur um sorgir og sigra við leiðarlok
lífs
Höf: Björn Þorláksson
Dauðinn fjallar um fólk sem tekst á við feigðina í
ýmsum myndum. Höfundur nýtir áratuga reynslu af
blaðamennsku til að fjalla efnislega um dauðann. Hann
ræðir við dauðavona fólk og þá sem hafa misst ástvini
og fléttar saman við rannsóknir og hugleiðingar.
272 bls.
Bókaútgáfan Tindur
IB
Dróttkvæði
Sýnisbók
Höf: Gunnar Skarphéðinsson
Dróttkvæðin voru einkum flutt við hirðir
konunga og annarra höfðingja til forna. Orðið
drótt merkir hirð og af því orði er nafn þessarar
kveðskapargreinar fengið. Hér er þess freistað með
allrækilegum skýringum og fræðslu um tilefni
hverrar vísu að færa þetta efni nær almenningi.
259 bls.
Skrudda
IB
Betri líðan á breytingaskeiði
Heilnæmt mataræði og girnilegar uppskriftir
Höf: Severine Menem
Þýð: Halla Kjartansdóttir
Konur geta hamið einkenni breytingaskeiðs og aukið
lífsgæði sín með því að huga vel að daglegu mataræði.
Hér er að finna ráðgjöf um næringu og venjur sem
koma jafnvægi á hormón, styrkja bein og vöðva og hafa
jákvæð áhrif á geðheilsu. Lífsstíls- og næringarráðgjöf
með yfir áttatíu ljúffengum uppskriftum sem
auka orku og vellíðan á breytingaskeiði.
224 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Bílar í lífi þjóðar
Höf: Örn Sigurðsson
Einstök gjafabók sem bregður skýru ljósi á
samband Íslendinga við bílinn, þennan þarfasta
þjón sem greitt hefur götu og létt störf, opnað
landið og veitt ferðafrelsi. Yfir 900 ljósmyndir og
ómetanlegur fróðleikur um flest það sem tengist
bílnum og þjóðfélaginu sem hann tók þátt í að
byggja upp. Sannkallaður ljósmyndafjársjóður!
320 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
SVK RAF
Blóðsykursbyltingin
Komdu jafnvægi á blóðsykurinn og breyttu lífi þínu
Höf: Jessie Inchauspé
Þýð: Nanna Rögnvaldardóttir
Með því að ná stjórn á blóðsykrinum má bæta
andlega og líkamlega heilsu sína umtalsvert, því
sykursveiflur hafa mikil áhrif á líkamann og geta
ráðið úrslitum um þróun alvarlegra sjúkdóma. Hér
gefur „glúkósagyðjan“ Jessie Inchauspé tíu einföld og
aðgengileg hollráð til þess að jafna blóðsykurinn – án
þess að hætta að borða það sem manni þykir best!
298 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Breytingaskeiðið
Jákvæður leiðarvísir að nýju upphafi
Höf: Davina McCall og Naomi Potter
Þýð: Hafsteinn Thorarensen
Breytingaskeiðið er meira en bók. Hún er bylting.
Hún er bjargvættur. Bókin kannar og útskýrir
vísindin, afsannar skaðlegar mýtur sem hafa haldið
aftur af okkur of lengi og brýtur þagnarmúrinn sem
staðið hefur í kringum breytingaskeiðið, aðdraganda
þess og afleiðingar. Nú kveðjum við óttann, röngu
upplýsingarnar, skömmina og þögnina.
312 bls.
Salka
Við erum sérfræðingar í
prentun bóka og bjóðum upp
á Svansvottaða framleiðslu
Kiljur og harðspjaldabækur
Lyngháls 1, 110 Rvk 5 600 600
Eyravegi 25, 800 Selfoss 482 1944
Glerárgötu 28, 600 Akureyri 4 600 700
prentmetoddi.is
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 51GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Fræðirit, frásagnir og handbækur