Bókatíðindi - 01.11.2023, Blaðsíða 56
KIL
Rammvillt í reikningskúnstum
Hvernig fegurð villir um fyrir eðlisfræði
Höf: Sabine Hossenfelder
Þýð: Gunnlaugur Björnsson og Baldur Arnarson
Eru vísindin á villigötum? Hafa vísindamenn horfið
frá hinni vísindalegu aðferð? Hafa þeir villst af
leið fyrir fegurðar sakir og sent frá sér rit gerðir
sem bæta litlu við núverandi þekkingu? Þýski
eðlisfræðingurinn og vísindamiðlarinn Sabine
Hossenfelder tekst á við slíkar grundvallarspurningar
í þessari um töluðu og umdeildu bók.
304 bls.
Ugla
IB
Reykjavík
nú og þá
Höf: Einar Th. Thorsteinsson
Vönduð bók með úrvali greina úr tímaritinu
Land og Saga sem segja sögu borgarinnar,
hvernig borg verður til og þróast yfir 250 ára
tímabil ásamt því að taka fyrir einstaka götur
og hverfi. Bókin er uppfull af áhugaverðum
ljósmyndum frá tímabilinu ásamt gríðarlegum
fróðleik. Bókin er einnig fáanleg á ensku.
Land og Saga
KIL
Réttlæti hins sterka
Ádeila á dómskerfið og Alþingi
Höf: Jörgen Ingimar Hansson
Fjallað er um hvernig dómsmál fer fram. Meðal
annars úrelt kerfi, vilhallt þeim sterka, mikill
illfyrirsjáanlegur kostnaður, auðvelt að dæma
hverjum sem er í vil, mál sem eru þanin út, gildrur,
vettvangur lyginnar og rannsókn undirskrifta.
292 bls.
Rekstrarstofan
SVK RAF HLB
Rimsírams
Höf: Guðmundur Andri Thorsson
Þessi fjörlega bók geymir skáldskap og skoðanir,
minningar og mas, brýningar og boðskap – allrahanda
rimsírams. Guðmundur Andri lýsir hér hversdögum
og sparidögum, morgunstundum og draumanóttum,
rýnir í fortíð og samtíð og framtíð, sjálfan sig og
samfélagið. Stílvopnið er vel yddað og lesendum boðið
upp í dans við orð og hugmyndir um allt sem er.
296 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
SVK
Rit Árnastofnunar (Rit 113)
Rúnir á Íslandi
Höf: Þórgunnur Snædal
Í þessu aðgengilega yfirlitsriti sýnir rúnafræðingurinn
Þórgunnur Snædal fram á samfellda og
fjölbreytta notkun rúnaleturs á Íslandi allt
frá landnámstíð og fram á 19. öld.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
SVK
Nöfn á nýrri öld
20 pistlar í tilefni af 20 ára afmæli Nafnfræðifélagsins
Ritstj: Emily Diana Lethbridge, Rósa Þorsteinsdóttir,
Svavar Sigmundsson og Jónína Hafsteinsdóttir
Bókin er gefin út í tilefni 20 ára afmælis
Nafnfræðifélags Íslands 2020. Höfundar
kaflanna velta nöfnum af ýmsu tagi fyrir sér,
bæði gömlum og nýjum, og kaflarnir eru allir
ríkulega skreyttir myndum og kortum.
288 bls.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
IB
Oddeyri Saga hús og fólk
Höf: Kristín Aðalsteinsdóttir og Arnór Bliki
Hallmundsson
Oddeyri er annað elsta hverfi Akureyrar. Hér segja
núverandi íbúar 55 húsa frá sjálfum sér, upplifun
sinni af Oddeyri, auk margra áhugaverðra frásagna
en viðmælendur eru ólíkt fólk á öllum aldri sem eiga
það sameiginlegt, að búa á Oddeyrinni. Samhliða
viðtölunum birtast söguágrip um alls 79 hús í
þessu sögufræga hverfi. Sjón er sögu ríkari.
173 bls.
Kristín Aðalsteinsdóttir og Arnór Bliki
Hallmundsson
SVK
Orðasafn í stjórnarháttum fyrirtækja
Höf: Þröstur Olaf Sigurjónsson og Runólfur Smári
Steinþórsson
Stjórnarhættir fyrirtækja er nýleg fræðigrein sem nær
yfir viðskiptafræði, hagfræði, lögfræði, stjórnmálafræði,
siðfræði og félagsfræði. Skilgreiningar á stjórnarháttum
fyrirtækja eru margar en í breiðasta skilningi fjalla þeir
um skipulag á starfsemi fyrirtækja og þær reglur, ferla
og venjur sem stuðst er við í stjórnun fyrirtækja.
Háskólaútgáfan
Orð og tunga 2023
Ritstj: Ellert Þór Jóhannsson og Helga Hilmisdóttir
Ritrýnt tímarit sem Stofnun Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum gefur út árlega. Birtar eru
fræðilegar greinar, á íslensku og ensku, sem
lúta að máli og málfræði. Sérstök áhersla er
lögð á greinar um orðfræði, orðabókafræði,
nafnfræði, íðorðafræði og málræktarfræði.
185 bls.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
KIL
Aðeins fleiri
Pabbabrandarar 2.0
Höf: Þorkell Guðmundsson
Veislan heldur áfram með nýjum skammti
af pabbagríni. Jafnvel enn súrara og
langsóttara en í síðustu bók.
128 bls.
Óðinsauga útgáfa
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa56
Fræðirit, frásagnir og handbækur