Bókatíðindi - 01.11.2023, Blaðsíða 4
IB
Dýrin - fyrstu orðin mín
Höf: Kathryn Jewitt
Þýð: Andri Karel Ásgeirsson
Allra yngstu börnin munu njóta þess að skoða hin
ýmsu dýr en um leið auka samhæfingu handa og
augna, málskilning og uppfylla snertiþörf sína.
14 bls.
Unga ástin mín
IB
Dýrlegt ímyndunarafl
Höf: Huginn Þór Grétarsson
Lísa litla er fjörkálfur sem hermir eftir dýrunum.
Hún öskrar eins og ljón, hoppar um hress og kát eins
og kengúra og apar meira að segja eftir apa!
Í bókinni ber að líta litrík og skemmtileg
dýr í bland við fjörugt ímyndunarafl.
Útkoman er auðvitað kostuleg!
Að bregða á leik er barnanna kúnst.
34 bls.
Óðinsauga útgáfa
IB
Einstakt jólatré
Höf: Benný Sif Ísleifsdóttir
Myndir: Linn Janssen
Öll fjölskyldan heldur út í skóg á aðventunni
í leit að fullkomnu jólatré. Sitt sýnist hverjum
um hvaða tré skuli velja en á endanum er það
Unnsteinn sem fær að ráða. Hugljúf saga um
fegurðina í því einstaka eftir Benný Sif Ísleifsdóttur
með heillandi myndum Linn Janssen.
40 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Handhafi Barnabókaverðlauna Reykjavíkur 2023
Einu sinni var Mörgæs
Höf: Magda Brol
Þýð: Baldvin Ottó Guðjónsson
Dag einn hrasar Magni mörgæs um stóran,
rauðan, blaktandi-flaktandi hlut sem ekkert
gagn virðist gera. En með því að stara nægilega
lengi á skrítnu táknin sem hluturinn hefur að
geyma lýkst upp fyrir Magna heill heimur af
nýjum vinum og spennandi ævintýrum.
Best þýdda barnabókin 2023.
Bók á góðu verði
32 bls.
Kvistur bókaútgáfa
IB
Elsku litla systir
Höf: Astrid Desbordes
Myndh: Pauline Martin
Þýð: Jessica Devergnies-Wastraete
Dag einn er Ástvaldi sagt að hann muni eignast
litla systur. Að vísu man hann ekki eftir að hafa
beðið um hana, en er samt ánægður.
Fréttirnar valda ýmsum heilabrotum og lífið breytist
þegar hún birtist því að lítil systir tekur pláss.
Það sem Ástvaldi þykir þó best við litlu
systur er að vera stóri bróðir hennar.
32 bls.
Kvistur bókaútgáfa
IB
Depill á jólunum
Flipabók
Höf: Eric Hill
Þýð: Jakob F. Ásgeirsson
Eftirlætis flipabækur barnanna! Það er kominn
tími til að skreyta jólatréð! Kíktu á bak við flipana
og þú kemst í sannkallað hátíðarskap.
16 bls.
Ugla
IB
Depill í leikskól anum
Höf: Eric Hill
Þýð: Jakob F. Ásgeirsson
Ávaxtastundin er að hefjast ... En hvar er Depill?
Lyftu flipunum og gáðu hvað þú sérð!
Í þessari skemmtilegu bók bregður hvolpurinn
fjörugi sér á leik í leikskólanum.
14 bls.
Ugla
HSP
Depill úti í rigningu
Höf: Eric Hill
Þýð: Jakob F. Ásgeirsson
Það er farið að rigna! Tilvalið að fara út og hoppa
í pollunum – en hvar er Depill? Lyftu flipunum
og láttu koma þér skemmtilega á óvart ...
Hundurinn Depill er vinur allra barna enda erfitt
að finna fjörugri og skemmtilegri hvolp.
16 bls.
Ugla
SVK
Skrifum og þurrkum út
Dundað í sjónum
Höf: Kirsteen Robson
Verkefnabók fyrir krakka sem eru að byrja að leysa
þrautir - um leið og þau þjálfast í að halda á penna.
Tússpenni fylgir með bókinni en krakkarnir nota
hann til þess að spora, teikna inn á myndirnar,
leysa þrautirnar, komast um völundarhúsin
og skoða hvað er ólíkt á myndunum.
22 bls.
Rósakot
SVK
Skrifum og þurrkum út
Dundað með dýrum um víða veröld
Höf: Kirsteen Robson
Verkefnabók fyrir krakka sem eru að byrja að
læra að telja, skrifa tölustafi og leysa þrautir - um
leið og þau þjálfast í að halda á penna.
Tússpenni fylgir með bókinni en krakkarnir nota
hann til þess að spora tölustafina, teikna inn á
myndirnar, leysa þrautirnar, komast um völundarhúsin
og skoða hvað er ólíkt á myndunum.
22 bls.
Rósakot
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa4
Barnabækur MYNDRÍK AR