Bókatíðindi - 01.11.2023, Blaðsíða 57
SVK
Sjáum samfélagið
Fræðileg greining á nútímasamfélaginu út frá
ljósmyndum úr hversdagslífinu
Höf: Viðar Halldórsson
Hvað er þetta óljósa fyrirbæri sem kallast
samfélag? Í þessari nýstárlegu bók er leitast við að
gera hið ósýnilega afl samfélagsins sýnilegt með
beitingu félagsfræðilegs innsæis á ljósmyndir úr
hversdagslífinu. Bókin hentar öllum sem hafa áhuga
á lífinu og tilverunni, og varpar ljósi á félagslega töfra
samfélagsins sem og vaxandi firringu þess.
Háskólaútgáfan
KIL
Skáldreki
Ritgerðasafn höfunda af erlendum uppruna
Höf: Angela Rawlings, Ewa Marcinek, Francesca
Cricelli, Giti Chandra, Helen Cova, Jakub
Stachowiak, Joachim B. Schmidt, Margrét Ann
Thors, Mazen Maarouf og Natasha S.
Innflytjendur á Íslandi hafa auðgað menningu landsins.
Hér segja tíu höfundar af erlendum uppruna frá sögu sinni,
löngunum og þrám; fjalla um búferlaflutninga, að fóta sig
í nýrri menningu, að skilja og finna rödd sína á íslensku
eða að ná til nýrra lesenda á sínu eigin tungumáli. Bókin
kom einnig út á ensku undir heitinu Writers Adrift.
152 bls.
Benedikt bókaútgáfa
SVK
Skírnir - Tímarit HÍB
Vor og haust 2023
Ritstj: Sigrún Margrét Guðmundsdóttir
Fjölbreytt og vandað efni, m.a. um íslenskt mál,
bókmenntir, náttúru og sögu, heimspeki, myndlist,
stjórnmál og ýmis fræði í sögu og samtíð. Skírnir er
elsta menningartímarit á Norðurlöndum og kemur
út tvisvar á ári og nú fæst Skírnir einnig í rafrænn.
Nýir áskrifendur velkomnir: hib@hib.is
490 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
IB
Skrímsli
í sjó og vötnum á Íslandi
Höf: Þorvaldur Friðriksson
Þjóðlegur fróðleikur eins og hann gerist bestur.
Fjallað er um þær margvíslegu tegundir skrímsla
sem lifa á Íslandi og í hafinu utan landsteinanna
allt frá hafmönnum og lyngbökum til nykra og
sjálfs Lagarfljótsormsins. Byggt er á gögnum úr
Íslandssögunni og fjölda viðtala við sjónarvotta.
Stútfull bók af myndum og merkilegum frásögnum.
360 bls.
Sögur útgáfa
IB
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins
Skynsemin í sögunni
Höf: G.W.F. Hegel
G.W.F. Hegel er einn af áhrifamestu heimspekingum
allra tíma. Í riti hans Skynsemin í sögunni er
dregin upp heildstæð mynd af hugsun hans um
samfélag og sögu. Sú hugsun og ritið sjálft hefur
haft, og hefur enn, djúp áhrif á samtíma okkar,
ekki aðeins á sviði heimspekinnar heldur einnig á
hvernig hugsað er og fjallað um stjórnmál.
360 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
IB
Saga Hnífsdals
Höf: Kristján Pálsson
Saga Hnífsdals er saga fólksins þar frá landnámi til
sameiningar við Ísafjörð árið 1971. Metnaðarfullt
fræðiverk og heillandi saga Hnífsdælinga fram á
okkar daga – stór saga af litlu þorpi sem markaði
spor í sögu þjóðarinnar. „Efnistök eru fjörleg og
bókin lipurlega skrifuð og áhugaverð, ekki bara fyrir
Hnífsdælinga.“ Sölvi Sveinsson, Morgunblaðinu
506 bls.
Sögur útgáfa
IB
Saga Landsvirkjunar
Orka í þágu þjóðar
Höf: Sveinn Þórðarson og Helgi Skúli Kjartansson
Þessi bók segir hálfrar aldar sögu Landsvirkjunar
auk sögu raforkunnar á Íslandi frá upphafi.
Landsvirkjun er eitt umsvifamesta fyrirtæki Íslands
í almannaeigu og hefur gegnt lykilhlutverki við að
nýta orkuauðlindir landsins. Í bókinni er brugðið upp
svipmyndum úr samtímaheimildum og efnið skýrt
með fjölda ljósmynda, korta og skýringamynda.
581 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
IB
Sauðfjárbúskapur í Reykjavík
Fjáreigendafélag Reykjavíkur
Höf: Ólafur Dýrmundsson
Reykjavík er eina höfuðborgin í heiminum sem
hefur fjárhúsahverfi og er með aðild að bæði
afrétti og lögskilarétt. Í þessari myndríku bók
er fróðlegu yfirliti um þróun sauðfjárbúskapar í
Reykjavík síðan um miðja 19. öld fléttað saman
við sögu Fjáreigendafélags Reykjavíkur.
304 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
IB
Sálmabækur 16. aldar, I og II
Umsj: Bragi Halldórsson, Elín Gunnlaugsdóttir,
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir, Jón Torfason, Karl
Sigurbjörnsson og Kristján Eiríksson
Í fyrra bindinu er handbók og sálmakver Marteins
biskups Einarssonar 1555 og Sálmabók Gísla biskups
Jónssonar 1558. Í öðru bindi er Sálmabók Guðbrands
biskups Þorlákssonar 1559. Þessir sálmar sem höfðu
mikil áhrif á þróun kveðskapar, söngs og tónlistar í
landinu eru nú loks aðgengilegir almenningi.
823 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
SVK
Siðfræði lífs og dauða
3. útgáfa
Höf: Vilhjálmur Árnason
Þessi bók kemur nú út í þriðja sinn í endurbættri
gerð með hliðsjón af þróun á sviðinu síðustu
ár. Í henni fjallar höfundur um siðferðileg
álitamál tengd heilbrigðisþjónustu, rannsóknum
á fólki, heilbrigðisstefnu og lýðheilsu á
ítarlegan en aðgengilegan hátt.
Háskólaútgáfan
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 57GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Fræðirit, frásagnir og handbækur